Gildi: Nákvæmni, notagildi, nýsköpun
Starfsmannaval
- Við vöndum starfsmannaval til að tryggja að rétt fólk sé á réttum stað
- Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum því starfsþjálfun
Starfsumhverfi
- Við fellum starfsumhverfi að þörfum starfseminnar og gerum starfsvettvanginn eftirsóknarverðan
- Með gagnkvæmum sveigjanleika og fjölskylduvænum starfsskilyrðum samræmum við starf og einkalíf
- Við leggjum kapp á öflugt upplýsingastreymi um málefni stofnunarinnar
- Við gætum jafnræðis/jafnréttis í hvívetna
- Við berum ábyrgð á góðum samskiptum, jákvæðni, virðingu og hrósi og ræðum það sem betur má fara
- Við sýnum hvort öðru og stofnuninni trúnað
Starfsþróun og fræðsla
- Við leggjum áherslu á starfsþróun, faglega þekkingu og hæfni með endurmenntun og þjálfun
- Við náum árangri með frumkvæði, metnaði og ábyrgð
Heilbrigt líferni og góður félagsandi
- Við stuðlum að heilbrigðu líferni
- Við stuðlum að góðum félagsanda
