CORINE

CORINE – flokkun landgerða

CORINE-verkefnið (CORINE: „Coordination of Information on the Environment“. Á íslensku: „Samræming umhverfisupplýsinga“) er samevrópskt landflokkunarverkefni sem flest Evrópulönd taka þátt í. Verkefnið felur í sér kortlagningu á landgerðum með notkun gervitunglamynda samkvæmt ákveðnum staðli og er unnið með sömu aðferðum og á sama tíma í öllum þátttökulöndunum. CORINE-flokkunin er uppfærð á nokkurra ára fresti með nýjum gervitunglamyndum en megintilgangur hennar er að afla sambærilegra umhverfisupplýsinga fyrir öll Evrópuríki og fylgjast með breytingum sem verða á landnotkun í álfunni með tímanum. Fyrsta CORINE-flokkunin var gerð uppúr 1990 og var hún uppfærð í fyrsta skipti árið 2000, önnur uppfærsla var miðuð við árið 2006 og sú þriðja árið 2012. Fjórðu uppfærslu lauk í nóvember 2018 og er samantekt vegna hennar væntanleg á næstunni. Umhverfisstofnun Evrópu hefur yfirumsjón með CORINE en Landmælingar Íslands sjá um flokkunarvinnuna á Íslandi.

Ísland gerðist formlegur aðili að CORINE-verkefninu í júní 2007 en þá var byrjað á flokkun landsins fyrir árið 2006 og breytingar sem urðu frá árinu 2000 einnig kortlagðar. Árið 2014 voru breytingar milli áranna 2006 og 2012 kortlagðar og liggja niðurstöðurnar fyrir. Lokaskýrsla á ensku er komin út en ítarlegri skýrsla á íslensku er væntanleg síðar á árinu 2015. Aðgangur að skýrslunum er opinn og hvers konar notkun gagnanna er öllum heimil endurgjaldslaust.

Það hefur lengi verið vitað að náttúra Íslands er talsvert frábrugðin flestum öðrum löndum í Evrópu og jafnvel þótt víðar væri leitað. Það er samt ekki fyrr en með niðurstöðum CORINE-verkefnisins að hægt er að setja fram ákveðnar tölur um landstærðir þessu til stuðnings, tölur sem hingað til hafa oft verið mjög ónákvæmar eða í mörgum tilvikum hreinlega alveg skort.

 

CORINE skýrsla – samantekt 2012 – 2018

CORINE skýrsla – samantekt 2006 – 2012

CORINE skýrsla – samantekt á ensku, febrúar 2015

CORINE skýrsla – samantekt, nóvember 2009 (2,6 mb)

CORINE vefsjá (er í Kortasjá LMÍ)

Final Report (á ensku)

Lokaskýrsla CORINE, október 2009 (2 mb).

Hafið samband við Landmælingar Íslands lmi@lmi.is ef þið viljið fá gögnin eða myndirnar í skýrslunni í fullri upplausn og ef þið hafið grun um villur í skýrslunni. Skýrslan er síðan uppfærð strax ef ábending um villu á við rök að styðjast.

Síðast uppfært 8. maí 2019.

CORINE yfirborðsflokkun

Leave a comment