Fjarkönnun

 

Rafsegulrófið og skipting þess í bylgjulengdabil. Fjarkönnunarmælingar eru einkum gerðar á öldulengdum á sýnilegu (visible light), innrauðu (infrared) og örbylgjusviði (radio waves). Sýnilegt ljós (400-700 nm) nær ekki yfir nema mjög lítinn hluta þess tíðnisviðs sem notað er í fjarkönnun.

1. Hvað er fjarkönnun?

Fjar­könnun er í víðasta skilningi könnun eða mæling úr fjar­lægð, þ.e. öflun upp­lýsinga um ákveðna eigin­leika eða ástand til­tekins hlutar eða efnis án þess að mælitæki sé komið í beina snertingu við það. Það rannsóknar­svið sem hlotið hefur nafnið fjarkönnun er oft skil­greint á eftir­far­andi hátt:

Fjar­könnun er mæling á raf­segul­geislun frá loft­hjúpi og yfir­borði jarðar, annað hvort úr flug­vél eða gervi­tungli, úr­vinnsla mæli­gagn­anna og myndræn fram­setning þeirra.

 

 

 

2. Fjarkönnun byggist á mismunandi endurvarpseiginleikum yfirborðsgerða

Einfölduð mynd sem sýnir hlutfallslegt endurkast (Reflectance) vatns (Water), græns gróðurs (Vegetation) og ógróins lands (Soil) sem fall af bylgjulengd (Wavelength) á sýnilegu og nær- innrauðu sviði.

Einfölduð mynd sem sýnir hlutfallslegt endurkast (Reflectance) vatns (Water), græns gróðurs (Vegetation) og ógróins lands (Soil) sem fall af bylgjulengd (Wavelength) á sýnilegu og nær- innrauðu sviði.

Þær upp­lýsingar sem fást með fjar­könnun um loft­hjúp og yfir­borð jarðar byggjast á því að mis­mun­andi efni endur­kasta og dreifa geislun með ólíkum hætti. Gróið land endur­var­par geislun á annan hátt en ógróið land eða hálf­gróið og ólíkur gróður­ endur­varpar geislun á mismun­andi hátt. Ein­stakar jarð­vegs- og berg­tegundir geta haft mjög mis­mun­andi endurkastseigin­leika og ljós­endur­kast frá haf­fletinum er mis­mun­andi eftir því hve mikið er af svifi eða upp­leystum efnum í yfir­borð­s­lögum sjávar.

Einnig er dreifing og gleypni skýja og and­rúms­lofts háð efna­sam­setningu og ýmsum eðlis­eigin­leikum loftsins. Með því að mæla endur­kast raf­segul­geislunar samtímis á ákveðnum af­mörkuðum bylgju­lengdar­böndum má afla upp­lýsinga um loft­hjúpinn eða gerð og ástand yfir­borðs jarðar og flokka það í mismunandi land- eða yfir­borðs­gerðir.

3. Notkunarsvið fjarkönnunar

Þótt skipta megi fjar­könnun í mis­mun­andi rannsókna­rsvið er fjar­könnun í eðli sínu þverfaglegur vettvangur þar sem sér­fræðingar á ólíkum sviðum vinna saman. Á síðustu árum hefur fjar­könnun skipað æ mikil­vægari sess við hvers kyns um­hver­fis­vöktun. Á Íslandi eru viðfangsefni á sviði umhverfisrannsókna og vöktunar óvenju mörg og fjölbreytileg (sjá kafla 9. Fjarkönnunarrannsóknir á Íslandi). Fjar­könnunar­mælingar eru sérlega hentugar þegar fylgjast þarf með og mæla ýmsar breytingar sem verða á um­hverfinu. Með sam­ræmdri úr­vinnslu nýrra og gamalla gervitungla­mynda af sama svæðinu er hægt að sýna fram á þær breytingar (t.d. gróður- eða hita­breytingar) sem orðið hafa á þeim tíma sem leið milli þess sem myndirnar voru teknar. (Bakkafjara, Reyðarfjörður)

4. Mælitækni

Auk ýmis konar ljós­mynda­véla sem notaðar hafa verið til loft­mynda­töku í næstum heila öld hafa sér­stök fjar­könnunar­tæki, s.k. fjöl­rása skannar, rutt sér til rúms á undan­förnum áratugum. Þessi tæki mæla geislun samtímis á nokkrum að­greindum tíðni­böndum eða rásum, sem gerir það kleift að vinna marg­falt meiri upp­lýsingar úr gögnunum en ella væri hægt.

Önnur helstu tæki til fjar­könnunar­mælinga eru hita­skannar og myndradarar. Með hita­skönnum er varma­geislun jarðarinnar mæld og þannig má kort­leggja hita­stig yfir­borðsins í margvíslegum verkefnum. Við radar­myndatöku er notuð til­búin geislun sem send er frá gervi­tungli eða flug­vél og endur­kast hennar frá jarðaryfirborði er mælt. Radar­mælingar er hægt að gera hvort sem er að nóttu eða degi og þær eru einnig óháðar skýja­þekju.

Á síðustu árum hafa verið þróaðar rannsóknar­að­ferðir með notkun radartækni (bylgjuvíxlmælingar) sem gera það kleift að mæla landhæð og jarð­skorpu­hreyfingar mjög nákvæm­lega. Með þessari tækni er hægt að búa til landhæðarlíkön og fylgjast með hæðarbreytingum t.d. á eldvirkum svæðum í þeim tilgangi að segja fyrir um eldgos.

5. Fjarkönnun frá flugvél eða gervitungli

Fjar­könnun er stunduð frá flug­vélum og gervi­tunglum. Flug- og gervi­tungla­fjar­könnun út­i­loka ekki hvora aðra, heldur er um að ræða svið sem geta bætt hvort annað upp. Myndir frá gervi­tunglum gefa upp­lýsingar á ódýran og hag­kvæman hátt um víð­áttu­mikil svæði, en hefur fram á allra seinustu ár skort greini­hæfni til þess að sýna smá­at­riði (flug­hæð 300-800 km). Oft geta þær orðið til þess að uppgötva og stað­setja áhuga­verð fyrir­bæri sem síðan er hægt að skoða nánar með flug­fjar­könnun. Aftur á móti er óger­legt að safna gögnum úr flugvél frá mjög stórum svæðum í einu, og því verður að beina flug­mælingum eða mynda­tökum mark­visst að fyrirfram ákveðnum stöðum.

Al­gengasta að­ferð við flug­fjar­könnun er loft­mynda­taka, þar sem teknar eru ljós­myndir af yfir­borði jarðar úr til­tölu­lega lítilli hæð (flug­hæð oftast 3 -10 km). Önnur mikil­væg grein flug­fjar­könnunar eru mælingar á hita­geislun, en greini­hæfni gervi­tungl­a­skanna á hita­inn­rauðu sviði nægir ekki til margs konar rannsókna, eins og t.d. eftir­lits með jarð­hita­svæðum og virkum eld­fjöllum.

Tækni­fram­farir á síðustu árum hafa orðið til þess að staf­ræn gögn hafa rutt sér sí­fellt meira til rúms í flug­fjar­könnun. Ótvíræður kostur flugfjarkönnunar er sá að hægt er að fljúga yfir rannsóknar­svæðin jafn­skjótt og að­stæður leyfa. Gervi­tunglin eru hins vegar á föstum brautum og geta menn þess vegna þurft að bíða nokkuð eftir því að þau fari yfir ákveðinn stað við þau veður­skil­yrði að nothæf gögn fáist t.d. vegna skýja.Við þessu vandamáli hefur reyndar verið brugðist á seinustu árum með stýranlegum myndatökubúnaði þannig að hægt er að taka myndir af svæðum sem ekki eru beint undir braut gervitunglsins.

Segja má að öll fjar­könnunar­tæki í gervi­tunglum eigi sér hlið­stæðu í flug­fjar­könnunar­tækjum, enda eru gervi­tungla­tækin prófuð um borð í flug­vélum áður en endan­legri gerð þeirra er komið á braut um jörðu.

6. Þróun fjarkönnunartungla

Fyrsta gervitunglinu sem sérstaklega var ætlað til ítarlegrar könnunar á yfir­borði jarðar, Landsat 1, var skotið á braut um­hver­fis jörðu árið 1972. Um borð í Landsat 1 var fjöl­rása skanni (MSS = MultiSpectral Scanner) sem safnaði gögnum á fjórum að­greindum tíðni­böndum á sýni­legu og nær­inn­rauðu sviði með 79 m greini­hæfni. Síðan hefur fjöl­mörgum ólíkum gerðum fjar­könnunar­tungla verið komið á braut um jörðu. Þróun fjarkönnunartækjanna hefur verið mjög ör og hefur fjöldi tíðni­banda (mælirása) og greini­hæfni aukist jafnt og þétt auk þess sem mörg tæki eru nú sér­hæfð til ákveðinna rannsókna.

Mikið notaðar ger­vi­t­ung­la­myndir hér á landi á undanförnum árum eru frá SPOT-5 tunglinu sem komið var á braut um jörðu árið 2002. SPOT-5 myndir hafa fjögur bönd með 10m greinihæfni (í grænu og rauðu sýnilegu ljósi og á nær- og mið-innrauðu sviði) og einu pan-bandi með 2,5m greinihæfni, sem notað er til að skerpa litframsetningu myndanna. Hver SPOT-5 mynd nær yfir 60km x 60km eða 3600km2 stór svæði. Nú er til safn SPOT-5 mynda sem þekja allt landið og allar innlendar stofnanir sem fást við söfnun og framsetningu landupplýsinga geta nýtt sér.

Á allra seinustu árum hafa gervitunglamyndir með 0,5m greini­hæfni verið settar á markað og áætlanir eru um gervitungl sem tekur myndir með 0,25m myndpunktsstærð, en það er sambærileg greinihæfni við flestar loftmyndir.

7. Úrvinnsla fjarkönnunargagna

Mynd­efnið, sem safnað er með fjar­könnun, er nú orðið nær eingöngu á staf­rænu formi og unnið er úr því í tölvum. Við hefðbundna loft­mynda­töku eru að vísu notaðar ljós­mynd­a­f­ilmur, en venjulega eru þær skannaðar eftir framköllun og þannig komið á staf­rænt form.

Nú­tíma fjar­könnun er óhug­sandi án tölvu­vinnslu gagn­anna. Tölvurnar gera kleift að vinna samtímis og sam­eigin­lega úr gífur­legu magni mis­mun­andi gagna sem sam­sett eru úr mörgum tíðniböndum og draga með því fram upp­lýsingar sem ekki er unnt að koma auga á í upp­runa­legu gögnunum. Með auknu um­fangi og fjölbreytni fjar­könnunar­gagna hafa orðið gífurlegar framfarir í þróun nýrra úr­vinnslu­að­ferða, sem ráða við mikið gagnamagn og geta vinsað úr þeim þær upp­lýsingar sem sóst er eftir. Margir framleiðendur hafa sett fullkomna hugbúnaðarpakka til myndvinnslu á markað og úr­vinnsla fjar­könnunar­gagna er nú vettvangur mikil­vægra rannsókna í hug­búnaðar­gerð. Ókeypis hugbúnað fyrir einfalda vinnslu á fjarkönnunarmyndefni má finna hér.

8. Mikilvægi fjarkönnunar á Íslandi – stór lögsaga, strjálbýlt land og sérstætt náttúrufar

Ís­land er stórt og strjál­býlt land um­lukið víð­áttu­miklu haf­s­væði og Íslendingar byggja af­komu sína að mestu á því sem landið og hafið gefa af sér. Það er því skylda okkar að kanna og vakta þær auð­lindir sem við búum yfir. Auk þess er Ísland jarðfræðilega mjög ungt land sem enn er að byggjast upp og stöðugt þarf að vera á verði gagnvart ýmiss konar náttúru­vá eins og t.d. eldgosum, jarðskjálftum og flóðum.

Mikil­vægi náttúru­auð­linda, sér­stætt náttúru­far og víðfeðm lög­saga landsins (um 758.000 km²), kallar á öfluga fjarkönnun hér á landi. Með fjar­könnun er hægt að rannsaka og vinna á hag­kvæman hátt úr upp­lýsingum frá víð­áttu­miklum svæðum, fylgjast með breytingum og bæta þekkingu ok­kar á nátt­úr­fari lands, lofts og hafs. Fjar­könnun verður stöðugt ríkari þáttur í al­mennum náttúru­fræði­rannsóknum, vöktun á náttúru­vá, eftir­liti með fram­kvæmdum, áætlunum um land­notkun og í fræðslu­starfi. Þarfir fyrir fjar­könnun eru marg­þættar og breytilegar og aukast eftir því sem tækninni fleygir fram.

9. Fjarkönnunarrannsóknir á Íslandi

Um­sjón og eftir­lit með um­hverfinu og rannsóknum á lofthjúp, sjó og landi verður ekki sinnt fyrir allt landið og hafið um­hver­fis nema með mark­vissri fjar­könnun. Mikilvægast er að sinna þeim þáttum sem hafa sér­stöðu hér á landi, t.d. haf­rannsóknum, jarð­hita-, jarð­skjálfta- og eld­fjalla­rannsóknum, jökla­rannsóknum, land­mótun, og rannsóknum á jarð­vegs­rofi og ást­andi gróðurs auk vöktunar á veðri og hafís.

Á Íslandi er fjarkönnun notuð með fjölbreytilegum hætti. Hér verður ekki gerður tæmandi listi yfir öll þau svið þar sem fjar­könnun nýtist eða gæti nýst en látið nægja að nefna nokkur dæmi:

Haf­fræði- og sjá­var­lífsrannsóknir. Ást­and sjávar (hita­stig, straumar), haf­ís, blaðgrænu- og át­u­magn.

Veður­at­huganir. Ástand lofthjúpsins (ský, úrkoma, vindar, hitastig). Veðurspár, útbreiðsla hafíss og snjóhula.

Jöklafræði. Mælingar og eftirlit með jöklabreytingum. Mælingar á rennslishraða skriðjökla.

Gróður­fars- og jarð­vegs­at­huganir. Gróðurfar, ástand gróðurs, rannsóknir á jarð­vegs­rofi. Land­nýtingar- og land­græðslu­á­ætlanir.

Jarð­vísindi. Kortlagning jarð­fræði­legra að­stæðna og kort­lagning auð­linda. Landhæðarmælingar og gerð landlíkana, eftirlit með landhæðarbreytingum.

Orku­rannsóknir. Eftir­lit með virkni jarð­hita­svæða, vatnsbúskapur og rannsóknir á virkjanasvæðum.

Eftir­lit og öryggis­þjónusta.Vöktun vegna aðsteðjandi náttúruvár. Öryggi manna á sjó og í landi. Eftir­lit með mann­virkjum og byggð. Vöktun á eld­gosum, flóðum, fram­hlaupi jökla og skriðu­föllum. Eftir­lit með mengun.

Skipulags- og áætlana­gerð. Kortlagning, áætlanir og eftirlit með landnotkun, verndun lands og sjávar.

Þróun búsetu. Greining á um­hver­fis­á­hrifum, greining forn­minja.

Korta­gerð. Grunn­gögn fyrir staf­ræna korta­gerð og mikilvæg upplýsingaveita fyrir land­fræði­leg upp­lýsinga­kerfi.

Dýrastofnar. Vöktun á stofnstærð villtra dýra (hvalir, fuglar, hreindýr).

10. Ný kortatækni og upplýsingaumhverfi (landupplýsingakerfi)

Nú­tíma­­tækni hefur gjörbreytt að­ferðum við kortagerð og vinnslu á hvers kyns land­upp­lýsingum. Land­upp­lýsingum er nú nær eingöngu miðlað á staf­rænu formi, sem eykur mjög notagildi þeirra, m.a. með nýjum möguleikum á að tvinna saman mismunandi upplýsingar.

Margvíslegar upplýsingar um land, byggð og umhverfisskilyrði má leggja saman til þess að fá bættan skilning á einstökum umhverfisþáttum, nýtingu landsins, þróun þess, o.s.frv. Um leið opnast nýjar leiðir til að miðla upplýsingum og gera þær aðgengilegar.

Á komandi árum mun þörfin á fjar­könnunar­gögnum aukast og tækni til úr­vinnslu þeirra mun þróast ört. Það er því brýnt að fylgjast með þróun fjar­könnunar og hag­nýta þá tækni sem fjar­könnun býður upp á en jafnframt er nauðsynlegt að tryggja góð tengsl við þá sem vinna með annars konar landupplýsingar.

LÍSA eru frjáls fé­laga­sam­tök um sam­ræmd land­fræði­leg upp­lýsinga­kerfi. Þátttakendur eru stofnanir, sveit­ar­f­é­l­ög og einka­fyrir­tæki. Á vegum sam­takanna er unnið að því að efla sam­starf og auka notkun land­upp­lýsinga. Sam­tökin taka þátt í sam­starfi sam­bæri­legra erlendra sam­taka.

Leave a comment