Örnefni -almennt

Frá því um 1990 hefur verið unnið að skráningu örnefna hjá Landmælingum Íslands í stafrænan gagnagrunn.

Í 4. gr. í lögum um landmælingar og grunnkortagerð segir að eitt af verkefnum Landmælinga Íslands séu skráning og viðhald örnefna í samráði við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Um ágreiningsmál um örnefni fjallar örnefnanefnd en í reglugerð nr. 136 um störf örnefnanefndar segir í 3. gr. lið 4 að verkefni örnefnanefndar sé að úrskurða hvaða örnefni skuli sett á landakort sem gefin eru út á vegum Landmælinga Íslands eða með leyfi þeirra, sé ágreiningur eða álitamál um það efni.

Vegna áðurnefnds samstarfs Landmælinga Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum var búið til vefverkfæri til skráningar örnefna í sameiginlegan örnefnagrunn. Fyrsta útgáfa vefskráningarinnar var tekin í notkun árið 2009 en árið 2013 útbjuggu Landmælingar Íslands nýja útgáfu, sem gerir skráningu, yfirlestur og leiðréttingar mun einfaldari en áður var. Báðar stofnanirnar og fleiri aðilar geta unnið við örnefnaskráningu í gegnum vefinn á sama tíma og auðveldar það alla samvinnu með örnefnin. Vinnan getur farið fram hvar sem er, eina sem til þarf er tölva og netsamband.

Skráning örnefna á vefnum gefur mikla möguleika varðandi söfnun þeirra, þátttöku almennings og varðveislu á menningararfi Íslendinga. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum varðveitir allar örnefnalýsingar sem til eru af jörðum landsins en staðkunnugt fólk þarf til að staðsetja örnefnin út frá örnefnalýsingunum, á réttan stað á korti eða loftmynd. Átthagafélög gætu komið að slíku verkefni, þar sem örnefni eru hnituð inn í grunninn með heimamönnum.

Að lokinni skráningu eru örnefnin tekin úr grunninum og birt á vef Landmælinga Íslands og í IS 50V gagnagrunninum sem er gjaldfrjáls og öllum til afnota.

Vegna birtingar á vefnum hafa verið búin til tíu lög í mismunandi mælikvörðum. Í mælikvarðanum 1:2 000 birtast öll örnefni en í smærri mælikvörðum eru ekki öll örnefni sýnileg.

[button link=“https://atlas.lmi.is/ornefnasja/“ color=“default“ target=“_blank“ size=“small“]Örnefnasjá[/button]

Leave a comment