Helstu verkefni sviðs miðlunar og grunngerðar eru við uppbyggingu á grunngerð landupplýsinga, INSPIRE-tilskipunina, miðlun og/eða sölu landfræðilegra gagna ásamt því að miðla upplýsingum og þekkingu til notenda. Svið miðlunar og grunngerðar sér um vef Landmælinga Íslands, þar sem aðgengi er að fjölbreyttum upplýsingum og gagnasöfnun, ásamt því að sjá um útgáfu á ársskýrslu og öðru kynningarefni. Undir sviðið heyrir meðferð skjala, mynda, skráa og annarra gagna stofnunarinnar. Einnig er á sviðinu unnið að gerð stafrænna korta vegna sérverkefna og til miðlunar á vefnum til almennrar upplýsingagjafar og vegna stjórnsýslu opinberra aðila.
Forstöðumaður sviðs miðlunar og grunngerðar er Eydís L. Finnbogadóttir. Eydís hefur verið forstöðumaður hjá Landmælingum Íslands frá 1. júní 2001.
Frá 1. júlí 2019 er Eydís forstjóri Landmælinga Íslands.