|
|
|
1. Svæðisskipting
Landinu er skipt í 21 svæði. Undir hverju svæði á meðfylgjandi korti eru upplýsingar sem tilheyra því. Byrjið á að smella á svæðið sem óskað er eftir að fá upplýsingar um.

2. Yfirlitssíða
Hér birtist yfirlitssíða svæðissins sem veitir aðgang að yfirlitskorti, heimildaskrá og athugasemdaskrá í númeraröð. Fyrst skal smella á yfirlitskortið og kemur þá fram kort með upplýsingum um mörk sveitarfélaga á þessa svæði.

3. Yfirlitskort
Á yfirlitskortinu er að finna upplýsingar um:
- a. Númer svæðisins sem valið hefur verið
- b. Sveitarfélagsnúmer. Öll sveitarfélög hafa númer. Sum númer sem hér birtast eru ekki lengur í notkun vegna sameiningar sveitarfélaga. Frekari upplýsingar um nöfn og númer sveitarfélaga er að finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.fmr.is/?PageID=377
- c. Sveitarfélagamörk. Mörk sveitarfélaga á kortinu eru sýnd með línum sem aðgreindar eru með litum.
- d. Númer línu. Rauðu númerin á kortinu eru kennitölur línanna. Í skjalinu heimildaskrá, á yfirlitssíðu svæðisins, er fyrst að finna töflu með samantekt athugasemda hvers svæðis, þar fyrir aftan er heimildatafla svæðisins. Í dálknum lína í heimildatöflunni er að finna kennitölurnar línanna. Þar er hægt að sjá eftir hvaða korti eða heimildum línurnar eru teiknaðar og einnig hvort finna má athugasemd eða nánari heimildir um þær.
- e. Númer athugasemdar. Bláu númerin með bláum hring utan um eru númer athugasemda sem gerðar hafa verið við sveitarfélagmörkin ásamt ýmsum heimildum um þau. Ef t.d. bláa númerið 11,3 er á línunni þá þarf aftur að skoða yfirlitssíðu svæðisins. Smellt skal á athugasemdaskrá 11-03 til þess að fá allar þær upplýsingar sem tengjast þessari línu. Ef ekkert blátt númer er við línuna er þar engin athugasemd.
