Spurt og svarað – síður LMÍ

Ertu í vandræðum með eitthvað á síðu Landmælinga Íslands? Ef svo er þá gætu spurningar og svör hér að neðan hugsanlega leyst vanda þinn.

Ertu ekki viss um hverju þú átt að hlaða niður af niðurhalssíðunni?
Hvaða forrit nota ég til að opna gögn af niðurhalssíðu Landmælinga Íslands?
Hvernig á að opna .shp skrár og bæta WMS þjónustum inn í QGIS?
Er ætlunin að gera kort á Kortasafni og loftmyndir á Loftmyndasafni aðgengileg og ókeypis í fullri upplausn?
Er GIS hugbúnaður fáanlegur fyrir PC eða Mac?
Geta Landmælingar Íslands gefið upp hnit á ákveðnum stöðum, t.d. afmörkuðum loftmyndum?
Mig vantar upplýsingar um Íslandskort í Garmin GPS tæki. Er nú hægt að fá það hjá ykkur án gjaldtöku?
Hver sér um aðgengi GPS hnita hjá ykkur (LMÍ)?
Vegna þess að þið voruð að gera gögnin ykkar gjaldfrjáls, hvernig er best að nálgast gögnin? Er eitthvað sérstakt ferli sem þarf að fara í gegnum til að fá að gefa út efni með kortunum?

 

Ertu ekki viss um hverju þú átt að hlaða niður af niðurhalssíðunni?
Svar: Þú getur farið á Lýsigagnagáttina og skoðaðu gögnin þar áður en þú hleður þeim niður.
 
Hvaða forrit nota ég til að opna gögn af niðurhalssíðu Landmælinga Íslands?
Svar: Þú getur notað ýmis forrit t.d. QGIS (frítt), GRASS GIS (frítt), qvSIG (frítt), Opticks (frítt), ArcGIS, Microstation og Autodesk.
 
Hvernig á að opna .shp skrár og bæta WMS þjónustum inn í QGIS?
Svar: Hér eru leiðbeiningar um hvernig .shp skrár eru opnaðar og hér eru leiðbeiningar um hvernig á WMS þjónustu er bætt inn.
Er ætlunin að gera kort á Kortasafni og loftmyndir á Loftmyndasafni aðgengileg og ókeypis í fullri upplausn?
Svar: Loftmyndir og kort LMÍ er hægt að sækja í hárri upplausn.
Er GIS hugbúnaður fáanlegur fyrir PC eða Mac? Er þetta kannski einungis hugbúnaður fyrir GPS tæki?
Svar: GIS hugbúnaður er fáanlegur fyrir allar gerðir tölva en er ekki notaður í GPS-tækjum. QGIS er ókeypis hugbúnaður sem er mikið notaður af almenningi og hægt að sækja á netinu. (sjá hér að ofan tengla í QGIS og annan hugbúnað).
Geta Landmælingar Íslands gefið upp hnit á ákveðnum stöðum, t.d. afmörkuðum loftmyndum? Ef svo er, hvað myndi það kosta?
Svar: Ef þig vantar bara punktana sjálfa geturðu notað t.d. landupplýsingagátt okkar (https://kort.lmi.is) eða kortasjárnar okkar (Kortasjá eða Örnefnasjána) og fengið hnit þar. Það sem þarf að gera er að smella á „XY“ takkann og því næst á staðinn sem þú vilt fá hnit af og þá birtist hnitið (mismunandi eftir kortasjám). Ef þig vantar nákvæmara  hnit og t.d. uppréttingu á myndinni þá er það eitthvað sem verkfræði-/teiknistofur gera eða LMÍ geta gert samkvæmt tímagjaldi.
Hvernig virkar þessi breyting í gjaldfrelsi gagnvart þeim fyrirtækjum sem eru í dag áskrifendur af IS 50V grunni Landmælinga Íslands?
Svar: Stofnanir og fyrirtæki sem eru áskrifendur þurfa ekki að greiða LMÍ neitt héðan í frá nema ef þörf er á sérþjónustu.
Mig vantar upplýsingar um Íslandskort í Garmin GPS tæki. Er nú hægt að fá það hjá ykkur án gjaldtöku?
Svar: Íslandskort í Garmin tæki er vara þróuð hjá Samsýn og seld hjá Garmin á Íslandi. Kortið er afurð unnin úr grunngögnum LMÍ. Í mörg GPS tæki er þó hægt að nota vektorgögn á GPX formati en þá er hægt að hala niður gögnum frá LMÍ á t.d. SHP formati og breyta þeim yfir í GPX format. Mælt er þó með að ekki sé verið að breyta öllu landinu í einu, heldur aðeins hluta þess.
Hver sér um aðgengi GPS hnita hjá ykkur (LMÍ)?
Svar: Landmælingar Íslands geyma hnit frá 11 jarðstöðvum og er þeim safnað í rauntíma á einnar sekúndu fresti. Aðgengi að þeim er í gegnum GnWeb kerfið og eru gögnin á RINEX skráarformi. GPS-hnit á fastmerkjum er að finna í skýrslum um grunnstöðvarnetið og í skýrslu um landshæðakerfið en þar eru hnit á um 3500 fastmerkjum. Hér má einnig finna upplýsingar um geóíðuna (lágflötinn). Þjóðskrá Íslands er með hnit af eignarjörðum og upplýsingar um þær.
Vegna þess að þið voruð að gera gögnin ykkar gjaldfrjáls, hvernig er best að nálgast gögnin? Er eitthvað sérstakt ferli sem þarf að fara í gegnum til að fá að gefa út efni með kortunum?
Svar: Hvar þú sækir gögnin fer allt eftir því hvernig gögn þú ert að spá í.Ef þú vilt búa til einfalt kort til að birta á vefnum þínum er líklega einfaldast að fara í landupplýsingagátt okkar (https://kort.lmi.is) og búa til kortið þar. Ef þú ætlar að búa til kort alveg frá grunni þarftu að ná þér í GIS hugbúnað (sjá hér að ofan) og fara svo á niðurhalsþjónustuna og samþykkja skilmála og gefa upp nafn og netfang.