Landmælingar Íslands á Framadögum 2011

Landmælingar Íslands ásamt mörgum öðrum ríkisstofnunum og ráðuneytum tóku í gær þátt í Framadögum undir yfirskriftinni „Ríkið, stærsti þekkingarvinnustaður landsins“.

Fjármálaráðuneytið hafði forystu í framtakinu.

Framadagar eru árlegur viðburður í háskólalífinu og eru haldnir m.a. með það að leiðarljósi að auka tengsl háskólanáms við atvinnulífið.

Fulltrúi Landmælinga Íslands var vel merktur á svæðinu í bol sem á stóð „Landmælingar Íslands gera GIS“ og veitti upplýsingar um sérsvið stofnunarinnar.

Margir stúdentar sýndu stofnuninni áhuga ásamt því að veita ríkinu áhuga sem fjölbreyttum vinnustað.

Á sýningarsvæðinu var stórt veggspjald þar sem stúdentar gátu fundið sitt námssvið og séð hvaða stofnanir eða ráðuneyti störfuðu á því.

Framadagar heppnuðust vel og þeir stúdentar sem komu á sýningarsvæði ríkisins fengu miklar og athyglisverðar upplýsingar.

Leave a comment