Hjá Landmælingum Íslands er stöðugt unnið að uppfærslu landupplýsingagrunna og með því er séð til þess að ávallt séu til staðar aðgengilegar traustar landupplýsingar af öllu landinu. Á niðurhalssíðu stofnunarinnar http://atlas.lmi.is/LmiData/index.php er nú komin nýjasta uppfærsla á sex lögum af átta í IS 50V. Um er að ræða uppfærslu á hæðargögnum, vatnafari, mannvirkjum, örnefnum, samgöngum og strandlínu.
Breytingar eru mismiklar eftir lögum en flestar breytingarnar er að finna í örnefnalagin, vatnafarinu, punktalaginu í mannvirkjum og hæðargögnum í vegalaginu samgöngum. Minniháttar breytingar eru á strandlínu, línulaginu í hæðargögnum og flákalaginu í mannvirkjum. Línulagið og fjarskiptapunktalagið í mannvirkjum og flákalagið í samgöngum eru óbreytt milli útgáfa. Sú breyting hefur verið gerð að örnefni með útliti (anno-lög) fylgja ekki lengur með IS 50V örnefnagrunninum.
Til gamans má geta þess að nú í desember eru 10 ár síðan fyrsta útgáfa af IS 50V grunninum kom út.
Nánari upplýsingar um breytingar á lögum IS 50V er hægt að finna í landupplýsingagátt Landmælinga Íslands http://gatt.lmi.is/geoportal122/catalog/main/home.page