Starfsdagar utan stofnunar

Nýlega hélt starfsfólk Landmælinga Íslands starfsdaga utan stofnunar og heimsótti af því tilefni Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti. Á starfsdögum fór fram undirbúningsvinna vegna nýrrar stefnumótunar sem nú er í smíðum. Unnið var í vinnuhópum og áhersla lögð á umræður um innviði og verkefni stofnunarinnar. Þá var haldinn sameiginlegur fundur starfsfólks Landmælinga og Landgræðslunnar þar sem fram fór kynning á starfsemi stofnananna og miðlun á þekkingu og reynslu á sviði verkefna.

Unnið í vinnuhópum. Ljósm. Guðni Hannesson
Vinnuhópur að störfum.
Ljósmynd Guðni Hannesson
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri fræddi starfsfólk Landmælinga Íslands um landgræðslu á Íslandi og var um leið með leiðsögn um Landgræðslusafnið sem komið hefur verið upp í Gunnarsholti. Ljósm. Sigrún Árnadóttir
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri fræddi starfsfólk Landmælinga Íslands um landgræðslu á Íslandi og var um leið með leiðsögn um Landgræðslusafnið sem komið hefur verið upp í Gunnarsholti. Ljósmynd Sigrún Árnadóttir
Magnús Guðmundsson og Sveinn Runólfsson. Ljósmynd Saulius Prizginas
Magnús Guðmundsson og Sveinn Runólfsson.
Ljósmynd Saulius Prizginas