„Á dögunum var tíunda jarðstöðin tengd jarðstöðvakerfi Landmælinga Íslands. Stöðin er staðsett á Raufarhöfn og hefur skammstöfunina RHOF. Hún er kostuð af háskólanum í Savoie í Frakklandi og er í umsjón Veðurstofu Íslands og tilheyrir ISGPS neti hennar. Á næstunni er gert ráð fyrir að bæta a.m.k. tveimur stöðvum við kerfið og er þar helst… Continue reading Jarðstöðin RHOF tengd jarðstöðvakerfi LMÍ
Author: Gudni
Grunngerðarverkefnin framundan á haustmánuðum 2012
Á undanförnum vikum hafa Landmælingar Íslands unnið að verkáætlun vegna grunngerðar landupplýsinga fyrir haustið 2012. Áætlunin snertir á ýmsan hátt þá opinberu aðila sem starfa með landupplýsingar og vonast LMÍ eftir góðu samstarfi hér eftir sem hingað til. Áætlun haustsins er í stórum dráttum þessi: Lýsigögn: Lýsigögn LMÍ fyrir önnur gögn en IS 50V… Continue reading Grunngerðarverkefnin framundan á haustmánuðum 2012
Landmælingar hljóta alþjóðleg landupplýsingaverðlaun
Landmælingar Íslands hafa hlotið alþjóðleg verðlaun ESRI, sem er leiðandi fyrirtæki í landfræðilegum upplýsingakerfum í heiminum. Verðlaunin nefnast SAG (Special Achievement in GIS) og eru þau veitt þeim sem skara framúr í notkun á hugbúnaði fyrirtækisins. Að þessu sinni hlutu um 170 stofnanir eða fyrirtæki verðlaunin úr hópi um 300.000 viðskiptavina ESRI. Landmælingar Íslands,… Continue reading Landmælingar hljóta alþjóðleg landupplýsingaverðlaun
Viðmiðunarhnitakerfi
Eitt af þemunum í viðauka 1 í INSPIRE tilskipuninni er viðmiðunarhnitakerfi (e. Coordinate Reference System | CRS). Það skal nota við birtingu og geymslu annarra INSPIRE þema Íslands og því var forgangsverkefni Landmælinga Íslands að gera tillögu að því. En fyrst skulum við aðeins fara yfir hvað viðmiðunarhnitakerfi er. Til að birta landupplýsingar á korti… Continue reading Viðmiðunarhnitakerfi
Fjölbreytilegar landupplýsingar
Systurstofnun Landmælinga Íslands í Danmörku, Kort- og Matrikelstyrelsen hafa í samvinnu við Geoforum hafa opnað spennandi vefsíðu http://brugstedet.dk fyrir alla þá sem hafa áhuga á Landupplýsingum og notkun þeirra. Á Brugstedet.dk er að finna safn dæma um hvernig landupplýsingar eru nýttar við ýmis verkefni og skapa um leið verðmæti fyrir opinbera aðila og einkafyrirtæki. Á… Continue reading Fjölbreytilegar landupplýsingar
Lýsigagnagáttinn – upplýsingar fyrir notendur
Undanfarnar vikur höfum við verið að skerpa á verklagi í kringum skráningu lýsigagna í Landupplýsingagáttina. Við hvetjum alla til að hefja skráningu og hikið ekki við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar koma upp. Unnið er jafnt og þétt að þýðingu Landupplýsingagáttarinnar á íslensku og verður því lokið fyrir 1. júní. Þeir sem… Continue reading Lýsigagnagáttinn – upplýsingar fyrir notendur
Mannabreytingar í samráðsnefndinni.
Ingibjörg Marta Bjarnadóttir kemur í stað Sif Guðjónsdóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins í samræmingarnefndinni um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar. Samræmingarnefndin er því þannig skipuð nú: Sesselja Bjarnadóttir, umhverfisráðuneyti, formaður; Áki Ármann Jónsson, sviðsstjóri, tilnefndur af umhverfisráðuneyti; Borgar Páll Bragason, verkefnisstjóri, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti; Karólína Guðjónsdóttir, landfræðingur, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Magnús Guðmundsson, forstjóri,… Continue reading Mannabreytingar í samráðsnefndinni.
Heimsókn til KMS
Dagana 24. – 25. apríl fóru fjórir sérfræðingar LMÍ til KMS, systurstofnunar sinnar í Danmörku, til að miðla reynslu hvors annars af INSPIRE verkefninu. Þeir þættir sem voru til umfjöllunar voru lýsigögn (e. metadata), umbreyting gagna (e. data transformation), INSPIRE gáttir og þjónustur og að lokum innri grunngerð landupplýsinga (e. National SDI). Reynslan og þekkingin… Continue reading Heimsókn til KMS
Grunngerð landupplýsinga í Danmörku
Fundur með Ulla Kronborg Mazzoli frá dönsku kortastofnuninni KMS Fimmtudaginn 22. mars 2012 boðuðu Landmælingar Íslands til fundar meðal sérfræðinga frá stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum sem þurfa að takast á við að innleiða ný lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandien þau lög byggja á svokallaðri INSPIRE-tilskipun Evrópusambandsins. Gestur fundarins og aðalfyrirlesari var Ulla… Continue reading Grunngerð landupplýsinga í Danmörku
Villa í Internet Explorer 9 við notkun Landupplýsingagáttar
Þeir sem eru með Internet Explorer 9 hafa lent í vandræðum með Landupplýsingagáttina (http://gatt.lmi.is). Þar til þessi villa verður löguð hafa notendur tvo möguleika: Nota einhvern af eftirarandi vefskoðurum : Chrome, Firefox, Internet Explorer 8 eða Safari Nota Internet Explorer 9 með kveikt á “Compatability View”. Það er gert með þvi haka við Tools->Compatability View