Komin er út skýrsla með niðurstöðum úr könnun sem Landmælingar Íslands stóðu fyrir síðastliðið vor um stöðu landupplýsinga hjá opinberum aðilum. Könnunin var send til 40 stofnana og 74 sveitarfélaga og sá ráðgjafafyrirtækið Alta um framkvæmdina en úrvinnsla var í höndum Landmælinga Íslands. Nú eru liðin rúm 4 ár síðan lög nr. 44/2011 um grunngerð… Continue reading Könnun á stöðu landupplýsinga hjá stofnunum og sveitarfélögum
Author: jensina
Fjölgun á skráðum landupplýsingagögnum opinberra aðila
Hugtakið landupplýsingar má skýra sem staðsettar kortaupplýsingar ásamt upplýsingum um þær. Landupplýsingum opinberra aðila hefur fjölgað um 59 gagnasett frá árinu 2012 samkvæmt niðurstöðum könnunar um grunngerð landupplýsinga á Íslandi sem Landmælingar Íslands stóðu fyrir fyrr á þessu ári. Könnunin náði til 40 stofnana sem falla undir lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar og á… Continue reading Fjölgun á skráðum landupplýsingagögnum opinberra aðila
Starfsdagar utan stofnunar
Nýlega hélt starfsfólk Landmælinga Íslands starfsdaga utan stofnunar og heimsótti af því tilefni Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti. Á starfsdögum fór fram undirbúningsvinna vegna nýrrar stefnumótunar sem nú er í smíðum. Unnið var í vinnuhópum og áhersla lögð á umræður um innviði og verkefni stofnunarinnar. Þá var haldinn sameiginlegur fundur starfsfólks Landmælinga og Landgræðslunnar þar sem fram… Continue reading Starfsdagar utan stofnunar
Undirritun samnings um rafræna skilalausn
Landmælingar Íslands hafa um árabil notað rafræna skjalavistunarkerfið GoPro til að skrá og halda utan um skjöl og upplýsingar stofnunarinnar auk þess að nýta hugbúnaðinn í verkefnisstjórnun. Samkvæmt lögum ber opinberum stofnunum og ráðuneytum að afhenda öll skjöl til Þjóðskjalasafns Íslands og hefur fram til þessa þurft að prenta þau á pappír. Til þess að… Continue reading Undirritun samnings um rafræna skilalausn
Fréttabréfið Kvarðinn er komið út
Þriðja tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands, á árinu 2015 er komið út. Að þessu sinni er m. a. sagt frá niðurstöðum CORINE-flokkunar hjá Landmælingum Íslands en þar kemur m.a. fram að jöklar minnkuðu um 267km2 milli árana 2006 og 2012. Sagt er frá færslum í landshæðarkerfi vegna eldsumbrota í Holuhrauni, könnun á stöðu landupplýsinga hjá stofnunum og… Continue reading Fréttabréfið Kvarðinn er komið út
Hreyfði Holuhraun við Íslandi?
Sumarið 2014 fóru fram GNSS mælingar yfir Sprengisand á 34 fastmerkjum í Landshæðarkerfinu. Slíkar mælingar eru þáttur í vöktun á Landshæðarkerfinu þar sem fylgst er með færslum í hæð og legu valinna fastmerkja á 6-8 km millibili. Þessi fastmerki voru síðast mæld haustið 2003. Skömmu eftir að mælingum lauk á Sprengisandi hófust eldsumbrot í Holuhrauni.… Continue reading Hreyfði Holuhraun við Íslandi?
eENVplus vinnufundur
Um miðjan september var haldinn fundur í tengslum við verkefnið eENVplus sem Landmælingar Íslands eru þátttakendur í. Hlutverk eENVplus verkefnisins er að samþætta umhverfisupplýsingar frá stofnunum á sviði umhverfismála og gera þær aðgengilegar. Fundurinn var haldinn í Ljubljana í Sloveníu og var tilgangur hans að ræða stöðu verkefninsins og taka saman upplýsingar um það hvaða… Continue reading eENVplus vinnufundur
Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2015
Dagur íslenskar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert og hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið hvatt til þess að einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagssamtök hafi daginn í huga í starfsemi sinni. Í tilefni dagsins, miðvikudaginn 16. september næstkomandi, munu Landmælingar Íslands og Akraneskaupstaður taka höndum saman og bjóða til fræðslu- og örnefnagöngu. Gengið verður… Continue reading Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2015
Nýr vettvangur fyrir grunngerðarþemu
Fyrir stuttu var opnaður vettvangur fyrir sérfræðinga og leikmenn sem koma að eða hafa áhuga á uppbyggingu grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi. Um er að ræða þemuklasa innan grunngerðar landupplýsinga og er tilgangur þeirra að halda utan um umræður og þekkingu á skyldum landupplýsingaþemum (INSPIRE þemum), en grunngerðarlögin, sem sett voru í kjölfar INSPIRE… Continue reading Nýr vettvangur fyrir grunngerðarþemu
Samstarf norrænna kortastofnana styrkt
Norrænt samstarf á sviði korta- og landupplýsinga er mjög mikilvægur faglegur vettvangur til að afla og miðla þekkingu á sérhæfðu sviði. Árið 1992 var fyrst undirritaður samningur norrænna kortastofnana um slíkt samstarf og árlega hafa stjórnendur stofnananna hist til að marka stefnuna og taka stöðuna í þeim fjölmörgu verkefnum sem stofnanirnar vinna í sameiningu að. Þann… Continue reading Samstarf norrænna kortastofnana styrkt