Dagana 4. – 7. ágúst 2015 var haldinn í New York, fundur á vegum Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegt samstarf til að auka og bæta notkun landupplýsinga og tölfræðiupplýsinga. Þetta er í annað sinn sem slíkur fundur er haldinn en samstarf á þessu sviði og nafn nýrrar skrifstofu samstarfsins er UN-GGIM (United Nations initiative on Global… Continue reading Fundur Sameinuðu þjóðanna um aukna notkun tölfræði- og landupplýsinga
Author: jensina
Niðurstöður nýjustu CORINE-landflokkunar
Breytingar á landgerðum og landnotkun á Íslandi 2006 – 2012 Niðurstöður CORINE-flokkunar hjá Landmælingum Íslands CORINE-flokkunin CORINE (CORINE: Coordination of Information on the Environment, eða á íslensku: Samræming Umhverfisupplýsinga) er samevrópskt landflokkunarverkefni sem felur í sér kortlagningu á landgerðum og landnotkun í Evrópu með gervitunglamyndum. Flokkunin er endurtekin eða uppfærð á nokkurra ára fresti samkvæmt… Continue reading Niðurstöður nýjustu CORINE-landflokkunar
Ný vefsjá Ferðamálastofu
Í frétt sem Ferðamálastofa birti á vef sínum 9. júlí síðastliðinn kemur fram að stofnunin hafi birt gögn sem söfnuðust í hinu viðamikla verkefni „Kortlagning auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu.“ Um er að ræða metnaðarfullt verkefni sem nýtist við þróun og uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu, bæði opinberum stofnunum sem og einkaaðilum. Í verkefninu eru kortlagðir staðir þar sem… Continue reading Ný vefsjá Ferðamálastofu
Skýrslur INSPIRE vinnuhópa birtar
Skýrslur vinnuhópa vegna innleiðingar INSPIRE verkefnisins um stafrænar landupplýsingar hafa nú verið gerðar aðgengilegar á vef Landmælinga Íslands. Tilskipun Evrópusambandsins um notkun og miðlun stafrænna landupplýsinga (INSPIRE) lýtur að því að samræma og samnýta opinberar landupplýsingar, einkum í þágu umhverfismála. Ísland innleiddi tilskipunina árið 2011 vegna aðildar sinnar að Evrópska efnahagssvæðinu. Árið 2014 var sett… Continue reading Skýrslur INSPIRE vinnuhópa birtar
INSPIRE leiðbeiningar
Innleiðingu INSPIRE-tilskipunarinnar á Íslandi miðar hægt áfram, en örugglega. Henni til aðstoðar hafa sérfræðihópar innan Evrópusambandsins skrifað mikið af „Guidelines“ eða leiðbeiningum. Þær fjalla um hvernig landupplýsingar opinberra aðila skulu vera gerðar aðgengilegar og hvaða kröfur eru gerðar til þeirra. Svokallaður MIG-T hópur (Maintenance and Implementation Group – Technical) hefur unnið að gerð vefsíðu, Toolkit v1.1.… Continue reading INSPIRE leiðbeiningar
Nýtt gervitungl til kortagerðar
Aðfaranótt 23. júní 2015 var nýju gervitungli á vegum ESA (Europian Space Agenvy) skotið á loft. Gervitunglið sem kallast Sentinel-2 er fjarkönnunartungl og mun það gegna lykilhlutverki við kortagerð af landi og gróðri, sem hluti af Copernicusaráætlun Evrópusambandsins. Ísland er aðili að Copernicusáætluninni og eru Landmælingar Íslands aðaltengiliðir við verkefnið hér á landi. Sentinel-2 er… Continue reading Nýtt gervitungl til kortagerðar
Jarðstöðvakefi Landmælinga þétt með nýrri stöð
Í byrjun júní bættist ný mælistöð við jarðstöðvakerfi Landmælinga Íslands, en nýja stöðin er staðsett í landi Skarðshamra í Norðurárdal í Borgarfirði. Jarðstöðvar í kerfi Landmælinga Íslands eru þá orðnar 15 alls og nýtast við margvísleg verkefni þar sem þörf er á nákvæmum staðarákvörðunum t.d. á sviði rannsókna á náttúrunni, á sviði vöktunar á hreyfingum… Continue reading Jarðstöðvakefi Landmælinga þétt með nýrri stöð
Ný uppfærsla á IS 50V gögnum
Á niðurhalssíðu Landmælinga Íslands er komin ný útgáfa fjögurra gagnalaga af átta í IS 50V. Um er að ræða uppfærslu á örnefnum, mannvirkjum, samgöngum og hæðargögnum. Breytingar er mismiklar eftir lögum en flestar breytingar eru í örnefnalaginu, þar sem mikil og stöðug vinna fer fram við hnitsetningu. Skráning örnefna hefur aðallega farið fram á svæðum… Continue reading Ný uppfærsla á IS 50V gögnum
Farsælt samstarf um kortagrunn af norðurslóðum
Eitt af markmiðum Arctic SDI verkefnisins (Artic Spatial Data Infrastructure) er að koma á laggirnar samræmdum stafrænum kortagrunni af norðurskautssvæðinu, sem þekur um 1/6 af yfirborði jarðarinnar. Gert er ráð fyrir að kortagrunnurinn verði aðgengilegur á netinu fyrir alla sem á þurfa að halda. Arctic SDI verkefnið á sér nokkra sögu en því var ýtt úr… Continue reading Farsælt samstarf um kortagrunn af norðurslóðum
Nýr framkvæmdastjóri EuroGeographics
Mick Cory, frá kortastofnun Norður Írlands, hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri EuroGeographics. Mick tekur við starfinu þann 1. september næstkomandi af Dave Lovell sem hefur hefur gengt starfinu frá árinu 2007. EuroGeographics eru samtök korta- og fasteignastofnana í Evrópu. Í samtökunum eru 50 stofnanir frá 43 löndum og eru þau faglegur vettvangur korta- og fasteignastofnana… Continue reading Nýr framkvæmdastjóri EuroGeographics