Ný uppfærsla á IS 50V gögnum

Eitt af hlutverkum Landmælinga Íslands er að sjá til þess að ávallt séu til staðar aðgengilegar og traustar landupplýsingar af öllu landinu og er því stöðugt unnið að uppfærslu á landupplýsingagrunnum stofnunarinnar.  Nýjasta uppfærsla á IS 50V gagnagrunninum, sem er gjaldfrjáls eins og önnur gögn Landmælinga Íslands, er nú komin á niðurhalssíðu og  nær uppfærslan… Continue reading Ný uppfærsla á IS 50V gögnum

Published
Categorized as Fréttir

Vinnuhópar vegna innleiðingar á grunngerð landupplýsinga

Á undanförnum árum hafa Landmælingar Íslands unnið að því á grundvelli laga nr. 44/2011 í nánu samráði við umhverfis- og auðlindaráðuneytið að byggja upp grunngerð stafrænna landupplýsinga hér á landi. Verkefnið krefst samstarfs við ríkisstofnanir og sveitarfélög sem nota eða framleiða landupplýsingar og er grundvöllurinn INSPIRE tilskipun Evrópusambandsins. Meginmarkmiðið er að gera landupplýsingar aðgengilegar öllum… Continue reading Vinnuhópar vegna innleiðingar á grunngerð landupplýsinga

Græn skref hjá Landmælingum Íslands

Landmælingar Íslands eru meðal fyrstu ríkisstofnana til að aðlaga starfsemi sína að Grænum skrefum í ríkisrekstri og hafa náð fyrsta skrefi í þeirri aðlögun. Græn skref eru leið fyrir opinbera aðila til að vinna markvisst að umhverfismálum eftir skýrum gátlistum, meðal annars með það að markmiði að gera starfsemi ríkisins umhverfisvænni, draga úr rekstrarkostnði, auka… Continue reading Græn skref hjá Landmælingum Íslands

Published
Categorized as Fréttir

Fundur stjórnar Arctic SDI

Dagana 20. og 21. nóvember 2014 var haldinn  í Reykjavík, fundur stjórnar Arctic SDI verkefnisins. Arctic SDI er samstarfsverkefni átta þjóða á Norðurslóðum sem snýr að uppbyggingu grunngerðar fyrir landupplýsingar og tengingu kortagrunna á Norðurheimskautssvæðinu. Markmiðið er að nýta sem best kort og landupplýsingar sem til eru af þessu svæði óháð landamærum ríkja m.a. til… Continue reading Fundur stjórnar Arctic SDI

Frumvarp til laga um örnefni

Á næstunni mun mennta- og menningarmálaráðherra leggja fram á Alþingi, frumvarp til laga um örnefni. Frumvarpið er nú lagt fram í þriðja sinn en það var áður lagt fram á 142. og 143. Löggjafaþingi. Markmiðið með lögunum er meðal annars að stuðla að verndun örnefna og nafngiftarhefð í landinu sem hluta af íslenskum menningararfi og… Continue reading Frumvarp til laga um örnefni

Published
Categorized as Fréttir

Innleiðing INSPIRE gengur vel

Dagana 1. – 3. október tóku Landmælingar Íslands þátt í eENVplus ráðstefnu og vinnufundi sem haldinn var í Aþenu í Grikklandi. Fundurinn markaði mikilvæg tímamót vegna innleiðingar eENVplus (http://www.eenvplus.eu/ ) og INSPIRE þar sem Landmælingar Íslands hafa nú lokið við að samræma þrjú landupplýsingagagnasöfn í að kröfum INSPIRE. Þetta er mikilvægt skref í átt að… Continue reading Innleiðing INSPIRE gengur vel

Frumvarp um breytingar á lögum um landmælingar og grunnkortagerð

Á undanförnum árum hefur orðið mikil þróun við öflun, notkun og miðlun stafrænna landupplýsinga. Þessi þróun er í samræmi við aukna þekkingu, tækni og kröfur um nákvæmni og nýjungar sem gerðar eru í samfélaginu. Í tengslum við þessa öru þróun hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið lagt fram til kynningar drög að frumvarpi til breytinga á lögum… Continue reading Frumvarp um breytingar á lögum um landmælingar og grunnkortagerð

Published
Categorized as Fréttir

Frumathugun á samlegð Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands

Umhverfis og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson og innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir hafa samþykkt tillögu forstjóra Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands um að gerð verði frumathugun  á samlegð í starfsemi þessara stofnanna. Frumathugunin verður unnin í nánu samstarfi Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands og í samráði við þau ráðuneyti  sem þessar stofnanir heyra undir Eftirfarandi þættir… Continue reading Frumathugun á samlegð Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands

Published
Categorized as Fréttir

Evrópudeild UN-GGIM stofnuð

Fulltrúar á stofnfundi UN-GGIM

Í ágúst síðastliðnum sögðum við á heimasíðu Landmælinga Íslands frá fundi Sameinuðu þjóðanna í New York um alþjóðlegt samstarf til að auka og bæta notkun á landupplýsingum og kortum. Nafn þessa samstarfs og nýrrar skrifstofu Sameinuðu þjóðanna  á sviðinu er UN-GGIM (http://ggim.un.org/).  Nú hefur Evrópudeild UN-GGIM verið sett formlega á laggirnar, en það var gert… Continue reading Evrópudeild UN-GGIM stofnuð

Published
Categorized as Fréttir

Landmælingum Íslands afhent örnefni í örnefnagrunninn

Á dögunum voru Landmælingum Íslands afhentar hnitsettar örnefnaskráningar um 3000 örnefna í austurhluta Skaftárhrepps, nánar tiltekið gamla Hörgslandshreppi. Skráningin var unnin af Kirkjubæjarstofu að frumkvæði Búnaðarfélags Hörgslandshrepps og nefndist verkefnið Örnefnaarfur – Rafræn skráning.  Verkefnavinnan samanstóð aðallega af öflun heimilda hjá bændum og staðkunnugum íbúum á svæðinu og skráningu þeirra, en vinnan hefur staðið yfir… Continue reading Landmælingum Íslands afhent örnefni í örnefnagrunninn

Published
Categorized as Fréttir