Ný gjaldskrá tekur gildi

Ný gjaldskrá fyrir Landmælingar Íslands hefur verið samþykkt af umhverfisráðherra. Í gjaldskránni er tekið mið af verðlagsbreytingum undanfarinna ára en einnig hafa verið gerðar ýmsar lagfæringar í takt við breyttar áherslur. Meðal breytinga má nefna að ekki er lengur rukkað fyrir IS 500V gögnin en tekið er þjónustugjald fyrir afhendingu gagnanna. Birting á gögnunum eru áfram… Continue reading Ný gjaldskrá tekur gildi

Nýr búnaður til að afrita lofmyndafilmur

Nýlega festu Landmælingar Íslands kaup á sérhæfðum skanna af gerðinni Ultrascan 5000 frá fyrirtækinu Vexcel Imaging. Tækið er mjög sérhæft með svokallaða myndmælinganákvæmni, hið fyrsta sinnar gerðar hér á landi. Meginmarkmið kaupanna er að taka stafræn afrit af loftmyndafilmum í safni stofnunarinnar sem geymir nú um 140.000 loftmyndir af Íslandi frá árunum 1937 – 2000.… Continue reading Nýr búnaður til að afrita lofmyndafilmur

Umhverfisstofnun og Landmælingar Íslands gera samstarfssamning

Samstarfssamningur sem undirritaður var 15. janúar á milli Landmælinga Íslands og Umhverfisstofnunar kveður á um samvinnu við öflun og miðlun landfræðilegra gagna og umhverfisupplýsinga. Eitt helsta markmið samningsins er að nýta þá sérfræðiþekkingu sem starfsfólk þessara stofnana býr yfir og samnýta gögn til þess að koma í veg fyrir tvíverknað.  Samningurinn nær til samstarfs á… Continue reading Umhverfisstofnun og Landmælingar Íslands gera samstarfssamning

Landmælingar Íslands og Háskóli Íslands gera með sér samning um landupplýsingar

Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands undirrituðu þann 10. janúar afnotasamning um notkun á IS 50V landfræðilega gagnagrunninum fyrir stofnanir og nemendur Háskólans. Samningurinn markar tímamót því nú hafa allir starfsmenn og nemendur aðgang að fullkomnum landfræðilegum gagnagrunni af öllu Íslandi og geta notað hann við nám, rannsóknir og kennslu. Þeir… Continue reading Landmælingar Íslands og Háskóli Íslands gera með sér samning um landupplýsingar

Samstarfssamningur um Landlýsingu

Á dögunum var samstarfssamningur LÍSU og Landmælinga Íslands um lýsigagnavefinn Landlýsingu undirritaður. Í samningnum er áframhaldandi skráning upplýsinga um landfræðileg gögn í Landlýsingu tryggð. Landmælingar sjá um vistun hugbúnaðarins og aðgengi en nefnd á vegum samtaka LÍSU kemur til með að leita eftir nýskráningum og hvetja til uppfærslna á eldri upplýsingum.    

Landmælingum afhent gömul kort

  Síðastliðið vor heimsótti ræðismaður Íslands í Ástralíu, Inga Árnadóttir, Landmælingar Íslands og færði stofnuninni gömul Íslandskort að gjöf frá John Hitch, arkitekt og fyrrverandi flugmanni í breska flughernum. John Hitch er nú á tíræðisaldri og býr í Ástralíu en hann teiknaði Iðnskólann í Reykjavík ásamt Þór Sandholt.  

Samstarfssamningur við Landhelgisgæsluna

Landmælingar Íslands og Landhelgisgæsla Íslands hafa skrifað undir samstarfssamning milli stofnananna.  Markmið samningsins er að auka samstarf stofnananna á sviði kortagerðar, landfræðilegra upplýsingakerfa, landmælinga og til að samnýta sérþekkingu og gögn. Stofnanirnar munu koma sér saman um sameiginlega verkefnaskrá er varðar þessi atriði. Einnig munu þær sameignlega vekja athygli á gildi landupplýsinga á Íslandi.

Forstjóri LMÍ kjörinn forseti EuroGeographics

 Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, verður forseti samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu næstu tvö árin. Ársþingi samtakanna, EuroGeographics, lauk í dag 10. október 2007 í Dubrovnik í  Króatíu en Landmælingar Íslands og Fasteignamat ríkisins eiga aðild að þeim fyrir Íslands hönd. Meginþema ársþingsins að þessu sinni var “hlutverk korta- og fasteignastofnana á sviði umhverfismála… Continue reading Forstjóri LMÍ kjörinn forseti EuroGeographics