Sumarið 2016 var grunnstöðvanet Íslands mælt í þriðja sinn. Niðurstöður voru kynntar á vel sóttum fundi á Grand Hótel þann 14. nóvember 2017. Stuttu síðar voru gefnir út hnitalistar sem unnið var úr eftir ISNET2016 mælingarnar og mynda grunninn fyrir nýja viðmiðun ISN2016. Nú liggur fyrir TÆKNISKÝRSLA sem gerir ýtarlega grein fyrir niðurstöðum mælinganna og… Continue reading ISN2016 – Tækniskýrsla
Author: jensina
Lágmarksþjónusta hjá LMÍ fram yfir verslunarmannahelgi
Vegna sumarleyfa og alþrifa á húsnæði verður lágmarks starfsemi hjá Landmælingum Íslands fram yfir verslunarmannahelgi. Fáir starfsmenn eru við vinnu og ef fólk ætlar að heimsækja stofnunina er það beðið að hringja áður í síma 430 9000.
Eydís Líndal Finnbogadóttir skipuð forstjóri Landmælinga Íslands
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Landmælinga Íslands til næstu fimm ára. Eydís hefur starfað hjá Landmælingum Íslands frá árinu 1999, síðast sem forstöðumaður yfir fagsviði miðlunar og grunngerðar og sem settur forstjóri frá september 2018. Eydís var staðgengill forstjóra frá 2007, þar til hún var settur forstjóri. Valnefnd… Continue reading Eydís Líndal Finnbogadóttir skipuð forstjóri Landmælinga Íslands
Ársskýrsla Landmælinga Íslands 2018 er komin út
Ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2018 er komin út. Af mörgu er að taka þegar litið er yfir verkefni ársins og í ársskýrslunni er að finna gott yfirlit yfir marþætta starfsemi stofnunarinnar. Í ávarpi Eydísar Líndal Finnbogadóttur, sem hefur verið settur forstjóri frá því um mitt ár 2018, kemur meðal annars fram að árið 2018… Continue reading Ársskýrsla Landmælinga Íslands 2018 er komin út
Ný útgáfa fimm gagnalaga af átta í IS 50V
Á niðurhalssíðu Landmælinga Íslands er komin ný útgáfa fimm gagnalaga af átta í IS 50V. Um er að ræða uppfærslu á örnefnum, mannvirkjum, samgöngum, vatnafari og strandlínu. Breytingar er mismiklar eftir lögum en flestar breytingar eru í örnefnalaginu og er það eina lagið þar sem stöðugt er unnið að uppfærslum. Frá síðustu útgáfu hefur verið skráð töluvert… Continue reading Ný útgáfa fimm gagnalaga af átta í IS 50V
CORINE-flokkunin, Landeyjahöfn
Landeyjahöfn á Bakkafjöru var tekin í notkun sumarið 2010 en henni fylgdi jafnframt umfangsmikil uppgræðsla lands á sandinum næst höfninni. Meðfylgjandi þrjár gervitunglamyndir sýna þróun landgræðslustarfsins á þessu svæði. Myndirnar eru ekki í náttúrulegri litaframsetningu heldur er notast við nærinnrauðar rófsupplýsingar sem valda því að gróið land kemur fram í rauðum litum. Mynd 1 er… Continue reading CORINE-flokkunin, Landeyjahöfn
Samningur Landmælinga Íslands og Veðurstofu Íslands um samnýtingu vinnurýma
Aukin sveigjanleiki er hluti þess sem starfsfólk vinnumarkaðarins sækist eftir. Þetta var m.a. niðurstaða málþings Landmælinga Íslands nú á vormánuðum sem bar heitið „Ríkisstofnun úti á landi– búbót eða basl?“ Á málþinginu kom einnig fram að starfsmenn sem vinna í öðrum sveitarfélögum en þeir búa í eru undir meira álagi vegna ferða auk þess sem… Continue reading Samningur Landmælinga Íslands og Veðurstofu Íslands um samnýtingu vinnurýma
Kvarðinn, fréttabréf Landmælinga Íslands, er kominn út
Annað tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands á árinu 2019 er komið út. Í blaðinu er meðal annars sagt frá Corine-landgerðaflokkuninni, málþingi sem haldið var í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá því Landmælingar Íslands fluttu á Akranes og að Landmælingar Íslands taka við formennsku í Arctic SDI verkefninu. Þá er viðtal við Magnús… Continue reading Kvarðinn, fréttabréf Landmælinga Íslands, er kominn út
CORINE-flokkunin – Útþensla byggðar á höfuðborgarsvæðinu
Myndirnar sýna niðurstöður CORINE-flokkunarinnar árið 2000 (efri mynd) og 2018 (neðri mynd). Augljóst er hvernig byggð svæði (einkum rauðir litir) sem og skógar og skógræktarsvæði (grænir litir) hafa stækkað. Mikilvægur hluti af CORINE-flokkunarvinnunni er að leiðrétta villur í seinustu útgáfu gagnagrunnsins áður en raunverulegar breytingar eru kortlagðar. Á stöku stað má sjá slíkar leiðréttingar einkum… Continue reading CORINE-flokkunin – Útþensla byggðar á höfuðborgarsvæðinu
CORINE-flokkunin 2000 – 2018 Snæfellsjökull minnkar og minnkar og minnkar
Ofan á innrauða SPOT-gervitunglamynd (tekin 26. júlí 2005) eru dregnar mismunandi litar línur sem tákna útlínu Snæfellsjökuls í þau fjögur skipti sem CORINE-kortlagningin hefur farið fram. Taflan sýnir hvaða lína á við hvert ár og hvert flatarmál jökulsins var þá: Ár CORINE-kortlagningar Litur útlínu Flatarmál (km2) 2000 bleikur 12,1 2006 grænn 11,0 2012 rauður 9,2… Continue reading CORINE-flokkunin 2000 – 2018 Snæfellsjökull minnkar og minnkar og minnkar