Þeir sem eru með Internet Explorer 9 hafa lent í vandræðum með Landupplýsingagáttina (http://gatt.lmi.is). Þar til þessi villa verður löguð hafa notendur tvo möguleika: Nota einhvern af eftirarandi vefskoðurum : Chrome, Firefox, Internet Explorer 8 eða Safari Nota Internet Explorer 9 með kveikt á “Compatability View”. Það er gert með þvi haka við Tools->Compatability View
Category: Grunngerðarfréttir
Glærur frá 3. fundi samræmingarnefndar um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar
Þriðji fundur samræmingarnefndar um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar var haldinn þann 29. febrúar. Hér má sjá glærur frá þeim fundi: Kynning á grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar – Eydís Líndal Finnbogadóttir Grunngerðin – Gagnaskipulag LMÍ – Anna Guðrún Ahlbrecht INSPIRE – lýsigögn – Saulius Prizginas
Námskeið um skráningu lýsigagna 21. febrúar 2012
Nú er öðru námskeiði um skráningu lýsigagna samkvæmt kröfum sem INSPIRE gerir lokið. Einnig tengist Grunngerð fyrir stafrænar upplýsingar hér á landi málefninu. Hér fyrir neðan er að finna glærur af námskeiðinu og leiðbeiningar. Hvað er landupplýsingagátt og til hvers er hún Samúel Jón Gunnarsson Hvernig og hvar skráum við lýsigögn – Aðferðir við… Continue reading Námskeið um skráningu lýsigagna 21. febrúar 2012
Glærur frá 2. fundi samræminganefndar um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar
Annar fundur samræmingarnefndar um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar var haldinn þann 18. janúar. Hér má sjá glærur frá þeim fundi: Hugleiðingar um starf samræmingarnefndar – Magnús Guðmundsson, Landmælingum Íslands. Kynning – Þorvaldur Bragason, Orkustofnun.
6192 athugasemdir bárust
Í lok síðasta árs rann út frestur fyrir aðildalönd að INSPIRE tilskipun Evrópusambandsins, til að gera athugasemdir við flokkunarlista fyrir viðauka II og III. Alls bárust 6192 athugasemdir frá 160 stofnunum í 20 löndum.
Lýsigagnaskráningarnámskeið LMÍ 13. des 2011
Þann 13. des 2011 var haldið lýsigagnaskráningarnámskeið í tengslum við Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi. Hér er að finna krækjur á glærur úr fyrirlestrum námskeiðsins og ítarefni. Hvað er landupplýsingagátt og til hvers er hún Samúel Jón Gunnarsson Hvernig og hvar skráum við lýsigögn – Aðferðir við skráningu lýsigagna, helstu kostir og gallar. Saulius Prizginas og Anna… Continue reading Lýsigagnaskráningarnámskeið LMÍ 13. des 2011
Landupplýsingagátt opnuð
Landmælingar Íslands opnuðu í dag Landupplýsingagátt (e: geoportal) í tengslum við nýtt hlutverk sitt er snýr að grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar.
Samræmingarnefnd um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar
Umhverfisráðherra hefur skipað eftirfarandi aðila í samræmingarnefnd um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar:
Fundur með tæknimönnum stofnana
Þann 1. september héldu Landmælingar Íslands fund með tæknimönnum nokkurra stofnana sem eiga gögn tengd viðaukum I og II í INSPIRE tilskipuninni til að bera saman bækur sínar og fá yfirsýn yfir stöðu tæknimála. Á fundinn mættu fulltrúar Landgræðslu Íslands (LÍ), Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ), Þjóðskrár Íslands (ÞÍ), Vegagerðarinnar(VG), Umhverfisstofnunar (UST) og Skipulagsstofnunar (SK). Veðurstofa Íslands var að… Continue reading Fundur með tæknimönnum stofnana
Samráðsfundur forstjóra sjö stofnana um ný lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar
Þann 2. september 2011 boðaði forstjóri Landmælinga Íslands til samráðsfundar með forstjórum eða staðgenglum frá sjö lykilstofnunum til að kynna ný lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar.