Dagana 29. – 30. janúar síðastliðinn hittust fulltrúar Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands á fundi á Akureyri til að ræða samstarf og miðlun þekkingar og gagna á milli stofnananna. Báðar stofnanir sinna mikilvægum verkefnum fyrir samfélagið þar sem landmælingar, kortagerð og ýmsar landupplýsingar koma við sögu og því mikilvægt að vinna þétt sama. Fundurinn gekk… Continue reading Samráðsfundur Landmælinga Íslands og Þjóðskrár Íslands
Category: Fréttir
Af Klofalækjarkjafti og fleiri örnefnum
Starfsmenn örnefnamála hjá Landmælingum Íslands skemmtu sér vel í gær þegar frétt um örnefni var ein mest lesna frétt dagsins á mbl.is Í fréttinni voru til umræðu nokkur löng og um margt sérstök örnefni á Íslandi sem fengin höfðu verið af reddit.com vefnum. Í örnefnagrunni Landmælinga Íslands er að finna umrædd örnefni ásamt ríflega 100.000… Continue reading Af Klofalækjarkjafti og fleiri örnefnum
Samevrópsk kortagerðarverkefni
Hjá Landmælingum Íslands fer fram vinna við Evrópuverkefni undir stjórn EuroGeographics, við uppfærslu á þremur gagnagrunnum. Um er að ræða EuroBoundaryMap í mælikvarða 1:100 000, EuroRegionalMap í mælikvarða 1:250 000 og EuroGlobalMap í mælikvarða 1:1 000 000. Vinnan felst í því að uppfæra árlega upplýsingar fyrir hvert land eftir fyrirfram ákveðinni áætlun. Framleiðslustjórn verkefnisins setur… Continue reading Samevrópsk kortagerðarverkefni
Kvarðinn kominn út
Fyrsta tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands, á árinu 2018 er komið út. Margt fróðlegt ber þar á góma, sagt er frá endurmælingu á Grunnstöðvaneti Íslands, jafnlaunavottun, nýrri uppfærslu á IS 50V og ýmsu öðru. Þá ritar Magnús Guðmundsson grein þar sem hann horfir fram á veginn 2018.
Jólakveðja
Aukið aðgengi að opnum gjaldfrjálsum kortagögnum í Evrópu
Nýlega birtu EuroGeographics (samtök korta- og fasteignastofnana í Evrópu) niðurstöður könnunar um aðgengi að opnum kortagögnum/landupplýsingum. Könnuninni svöruðu 46 korta- og fasteignastofnana í Evrópu og var spurt um ýmislegt í tengslum við opin gögn, s.s. gjaldfrelsi, aðgengi, niðurhal og skilmála. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að opið og gjaldfrjálst aðgengi að þessum gögnum hafi aukist… Continue reading Aukið aðgengi að opnum gjaldfrjálsum kortagögnum í Evrópu
Niðurstöður ISNET2016 mælinganna – Hnitalistar
Sumarið 2016 var grunnstöðvanet Íslands mælt í þriðja sinn. Niðurstöður voru kynntar á vel sóttum fundi á Grand Hótel þann 14. nóvember síðastliðinn. Gerðir hafa verið hnitalistar þeirra mælistöðva sem unnið var úr eftir ISNET2016 mælingarnar og mynda grunninn fyrir nýja viðmiðun ISN2016. Hnitin eru birt sem jarðmiðjuhnit, baughnit með hæð yfir sporvölu GRS80 og… Continue reading Niðurstöður ISNET2016 mælinganna – Hnitalistar
Ný uppfærsla á IS 50V
Á niðurhalssíðu Landmælinga Íslands er komin ný útgáfa sex gagnalaga af átta í IS 50V. Um er að ræða uppfærslu á örnefnum, mannvirkjum mörkum, samgöngum, strandlínu og vatnafari. Breytingar er mismiklar eftir lögum en flestar breytingar eru í örnefnalaginu og er það eina lagið þar sem stöðugt er unnið að uppfærslum. Frá síðustu útgáfu hefur verið skráð… Continue reading Ný uppfærsla á IS 50V
Aðgengi að landupplýsingum á Íslandi að aukast
Síðan lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsinga á Íslandi voru sett árið 2011, hafa opinberir aðilar unnið að því að gera gögn sín aðgengileg. Eitt fyrsta verkefnið var að skrá lýsigögn fyrir gögnin og birta þær upplýsingar, auk þess gera gögnin sýnileg. Fyrsta skrefið í aðgengi hefur verið í formi skoðunarþjónusta og er nú hægt… Continue reading Aðgengi að landupplýsingum á Íslandi að aukast
Aðgangur að tveggja metra hæðarlínum af völdum svæðum landsins
Í fórum Landmælinga Íslands eru ýmis gögn sem eiga mismunandi uppruna en eru þess eðlis og á þannig sniði að erfitt getur verið að nýta þau í almenna korta- og gagnavinnslu. Meðal slíkra gagna eru hæðarupplýsingar og hefur stofnunin byrjað aðútbúa tveggja metra hæðarlínur fyrir valin svæði, þ.e. svæði þar sem gagna í háum gæðaflokki hefur verið aflað. Slík gögn eru m.a. lidargögn þar sem eitt hæðargildi er fyrir hvern 1-2 fermetra lands eða… Continue reading Aðgangur að tveggja metra hæðarlínum af völdum svæðum landsins