Þann 3. desember síðastliðinn var lokafundur eENVplus verkefnisins haldinn í Róm á Ítalíu en Landmælingar Íslands í samstarfi við Umhverfisstofnun hafa verið aðilar að verkefninu. eEVNplus verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu og snýst um að samnýta verkfæri og verkferla sem hannaðir hafa verið í tengslum við ýmis umhverfisverkefni Evrópusambandsins og nýta við framkvæmd og innleiðingu… Continue reading Lokafundur eENVplus verkefnisins
Category: Fréttir
Ný uppfærsla á IS 50V gögnum
Á niðurhalssíðu Landmælinga Íslands er komin ný útgáfa sex gagnalaga af átta í IS 50V. Um er að ræða uppfærslu á örnefnum, mannvirkjum, samgöngum, vatnafari, strandlínu og hæðargögnum. Breytingar er mismiklar eftir lögum en flestar breytingar eru í örnefnalaginu, þar sem mikil og stöðug vinna fer fram við hnitsetningu. Skráning örnefna hefur aðallega farið fram á svæðum… Continue reading Ný uppfærsla á IS 50V gögnum
Bráðnun jökla á Íslandi
Sóknaráætlun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum sem kynnt var nýlega, byggir á 16 verkefnum sem miða að því að draga úr losun, auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti, styðja alþjóðleg loftslagsverkefni og efla getu stjórnvalda til að takast á við strangari skuldbindingar í loftslagsmálum. Verkefnin skiptast í þrjá flokka: 1) Verkefni til þess að draga úr nettólosun… Continue reading Bráðnun jökla á Íslandi
Úttekt á vef LMÍ
Um árabil hefur verið unnið að uppbyggingu á vef Landmælinga Íslands og hefur sú vinna nánast eingöngu verið í höndum starfsmanna stofnunarinnar. Vefurinn er unnin í opna hugbúnaðinum Word Press sem nýtur mikillar útbreiðslu og býður upp á mikinn sveigjanleika í tengslum við samfélagsmiðla. Áhersla hefur verið lögð á að hafa vef Landmælinga Íslands einfaldan… Continue reading Úttekt á vef LMÍ
Landupplýsingar hjá stofnunum
Um landupplýsingar hjá stofnunum Á síðustu vikum hefur verið sagt frá niðurstöðum könnunar sem fór fram í vor um stöðu landupplýsinga hjá opinberum aðilum. Niðurstöðurnar eru áhugaverðar og liggur fyrir töluvert efni sem hægt er að kynna sér nánar í skýrslu með niðurstöðum úr könnun hér á heimasíðu LMÍ. Skýrslunni fylgir töflureiknisskjal þar sem hægt er… Continue reading Landupplýsingar hjá stofnunum
Endurheimt votlendis á Íslandi
Ríkisstjórn Íslands kynnti nýlega sóknaráætlun í loftslagsmálum til þriggja ára, sem er ætlað er að skerpa á áherslum Íslands í loftslagsmálum og efla starf í málaflokknum til að raunverulegum árangri í að minnka nettólosun verði náð. Verkefni og áherslur sem kynnt eru undir hatti sóknaráætlunar eru fjölbreytt og mörg hver sjálfstæð en eiga það m.a.… Continue reading Endurheimt votlendis á Íslandi
Aðgengi og skortur á landupplýsingum hjá sveitarfélögum
Það er áhugavert að rýna niðurstöður könnunar um landupplýsingar sveitarfélaga og bera saman við niðurstöður svipaðrar könnunar sem var gerð meðal sveitarfélaga árið 2009, vegna innleiðingar INSPIRE. Aðgengi að upplýsingum Athygli vakti hversu erfiðlega gekk að ná til sveitarfélaganna og fá svar frá þeim við könnuninni. Í fyrri könnuninni tókst að ná til töluvert fleiri… Continue reading Aðgengi og skortur á landupplýsingum hjá sveitarfélögum
Landupplýsingar hjá sveitarfélögum á Íslandi
Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi nær ekki einungis til opinberra stofnana heldur einnig til allra sveitarfélaga landsins. Könnun á stöðu landupplýsinga sem Landmælingar Íslands (LMÍ) stóðu fyrir fyrr á þessu ári, og sagt hefur verið frá á síðustu vikum hér á vef LMÍ, var einnig send til sveitarfélaganna. Af 74 sveitarfélögum bárust svör frá… Continue reading Landupplýsingar hjá sveitarfélögum á Íslandi
Könnun á stöðu landupplýsinga hjá stofnunum og sveitarfélögum
Komin er út skýrsla með niðurstöðum úr könnun sem Landmælingar Íslands stóðu fyrir síðastliðið vor um stöðu landupplýsinga hjá opinberum aðilum. Könnunin var send til 40 stofnana og 74 sveitarfélaga og sá ráðgjafafyrirtækið Alta um framkvæmdina en úrvinnsla var í höndum Landmælinga Íslands. Nú eru liðin rúm 4 ár síðan lög nr. 44/2011 um grunngerð… Continue reading Könnun á stöðu landupplýsinga hjá stofnunum og sveitarfélögum
Fjölgun á skráðum landupplýsingagögnum opinberra aðila
Hugtakið landupplýsingar má skýra sem staðsettar kortaupplýsingar ásamt upplýsingum um þær. Landupplýsingum opinberra aðila hefur fjölgað um 59 gagnasett frá árinu 2012 samkvæmt niðurstöðum könnunar um grunngerð landupplýsinga á Íslandi sem Landmælingar Íslands stóðu fyrir fyrr á þessu ári. Könnunin náði til 40 stofnana sem falla undir lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar og á… Continue reading Fjölgun á skráðum landupplýsingagögnum opinberra aðila