Hvernig finn ég söguleg kort og ljósmyndir Dana – Leiðbeiningar

  1. Farðu á forsíðu Landmælinga Íslands www.lmi.is
  2. Smelltu á Söguleg gögn, mjög neðarlega á síðunni, þá ferðu inn á síðu þar sem m.a. er sagt frá upphafi landmælinga á Íslandi
  3. Smelltu á hlekkinn Söguleg kort og ljósmyndir Dana, undir myndinni, þá ferðu inn í kortasjá
  4. Þegar þú ert komin inn í kortasjána, smelltu á vallista ofarlega til hægri á Síðunni – sjá hér merkt með gulu

 

 

 

  1. Hakaðu við Kort, Sögulegar ljósmyndir Dana og/eða Söguleg kort Dana – hér merkt með gulu. Þá birtast litaðir punktar á kortinu:
  • Grænir punktar eru Sögulegar ljósmyndir
  • Rauðir punktar eru Söguleg kort
  • Gulir punktar eru Gamlar bæjarteikningar
Til að aðgreina punktana er hægt að þysja inn í kortið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

6. Eftir að þú hefur valið punkt (stað sem þú vilt skoða) og smellt á hann smelltu þá á hlekkinn sem kemur upp – hér merkt með gulu

 

 

 

 

 

 

 

Þá opnast í nýjum glugga, það sem þú hefur valið, mynd, kort eða bæjarteikning