Nú er útgáfa 2.1 af IS 50V gagnagrunninum komin út. Í útgáfu 2.1 hafa öll lög verið uppfærð nema mannvirki og yfirborð en þau lög verða uppfærð seinna á árinu.
Skipting á gagnasettunum er eftirfarandi:
- Hæðarlínur og punktar
- Mörk: línur og flákar
- Samgöngur: línur og flákar
- Vatnafar: punktar, línur og flákar
- Örnefni: nöfn
- Mannvirki: punktar, línur og flákar
- Yfirborð: flákar
Breytingar á milli útgáfu 2.0 og 2.1 eru ekki miklar en þó eru alltaf einhverjar uppfærslur og viðbætur á gögnum. Til að mynda er Hálslónið komið inn í vatnafarið en það var hnitað eftir SPOT 5 gervitunglamynd sem var tekin síðastliðið haust.
Helstu breytingar eru að finna í samgöngulaginu en þar eru m.a. komnir inn nýir vegir frá mælingum sem fram fóru 2007. Einnig er komið nýtt samgöngulag sem sýnir flugvelli landsins, en áður voru flugvellir í mannvirkjalaginu. Að auki hefur nokkuð verið um breytingar í örnefnalaginu.