Skýringar kortasjá

Um kortasjána

Kortasjá Landmælinga Íslands er vefsjá þar sem megin markmiðið er að opna aðgengi að gögnum stofnunarinnar á auðveldan og notendavænan hátt. Í sjánni er hægt að skoða nýjustu útgáfu af IS 50V gagnagrunninum, Atlaskortin vinsælu og SPOT-5 gervitunglamyndir af öllu landinu bæði í innrauðum og náttúrulegum litum. Hægt er að skoða örnefni en fjöldi þeirra eykst eftir því sem þysjað er innar í kortin. Þá er hægt að mæla vegalengdir og fá hnit af kortum sem nýtast vel fyrir göngu- og útivistarfólk.

 SPOT-5 gervitunglamyndum hefur verið skeytt saman  en þær voru teknar á árunum 2002-2007. Myndirnar eru með 2,5m greiningarhæfni og hægt er að þysja gervitunglamyndirnar inn í mælikvarða 1:2 000.

 Atlaskortin (í mælikvarða 1:100 000) voru upphaflega gerð af dönskum landmælingamönnum á fyrstu fjórum áratugum 20. aldar. Þau voru síðast uppfærð árið 1989 og eru talin meðal fallegustu korta af Íslandi. Kortin er hægt að skoða í mælikvarða allt að 1:10 000.

 Þeir sem eru með Mac tölvur þurfa að fara inn á adobe.com og uppfæra Flash Player í 10.1.85.3 þá virkar örnefnaleitin á íslenska stafi í Safari og Chrome, í Firefox vantar þ og ð.

 Birting gagnanna

Þegar Kortasjáin er opnuð birtast gervitunglamyndir í raunlitum ásamt helstu örnefnum. Ef þysjað er inn í kortið með mælistiku sem er í efra horni sjárinnar vinstra megin eða með því að tvísmella á kortið/myndina birtast fleiri örnefni.

Með því að smella á þríhyrninginn á þysjunarstikunni er hægt að sjá í hvaða mælikvarða gögnin eru.

Einnig er hægt að skipta um undirlag miðað við þarfir en hér á eftir er nánari skýring á notkun þeirra hnappa sem Kortasjáin býður upp á.

Skýringar fyrir táknmynd vegaflokkunar

Vegir eru flokkaðir eftir yfirborði og veggerð í eftirtalda flokka:

Skýringar á táknum Atlaskortanna:

Ef þú vilt fá upplýsingingar um hvað tákn Atlaskortanna þýða smelltu þá hér. Skýringarnar eru þær sömu og er að finna neðst á flest öllum Atlaskortunum.

Skýringar á hnöppum kortasjárinnar:

Merki Landmælinga Íslands

Sé smellt á merki Landmælinga Íslands, í efra vinstra horni sjárinnar, færist notandinn yfir á heimasíðu stofnunarinnar.

Leitaraðgerðir

Leita:

Hér getur notandinn leitað eftir örnefnum úr mismunandi lögum IS 50V gagnagrunnsins. Þannig er hægt að leita bæði eftir örnefnum, bæjarheitum eða vegaheitum. Ef í grunninum er að finna fleiri en eitt nafn sem leitað er eftir (t.d. eru margar Laxár) þá birtist fjöldi fundinna nafna fyrir neðan leitarhnappinn. Til að velja úr nöfnunum er smellt á Birta lista hnappinn og því næst valið það nafn sem leitað er að. Í listanum sem birtist með leitarniðurstöðum er hægt að raða hverjum dálki eftir stafrófs- eða númeraröð með því að smellla á nafn dálksins. Með Hreinsa hnappinum hreinsar notandinn út þær leitarniðurstöður sem birst hafa.

Þó svo notandinn finni örnefnið/nafnið í leitinni er ekki víst að það birtist á kortinu eða Atlaskortinu. Þá kunna einnig að vera á Atlaskortunum nöfn sem ekki er að finna í leitinni.

Upplýsingar

Skýringar:

Þessi hnappur gefur notandanum upplýsingar um skýringar á innihaldi og notkun kortasjárinnar

Fyrirvari:

Hér fær notandinn upplýsingar um þá fyrirvara sem eru um notkun gagna Landmælinga Íslands þ.m.t. þeirra sem birtast í Kortasjánni.

Mikilvægt er að notendur kynni sér þessa fyrirvara og almenna skilmála.

Gögn

Kort:

Þegar þessi hnappur er valinn birtast IS 50V kortagögnin í viðmiðunarmælikvarða 1:50 000.

Atlaskort:

Þegar þessi hnappur er valinn birtast svokölluð Atlaskort sem voru gerð í mælikvarða 1:100 000 af dönskum mælingamönnum. Þessi kort hafa ekki verið uppfærð í áraraðir en gefa þó skýra mynd af landinu og hafa jafnvel verið talin til fallegustu korta sem gerð hafa verið af Íslandi.

Mynd:

Við val á þessum hnappi birtist SPOT-5 gervitunglamynd í náttúrulegum litum (sú sama og birtist þegar komið er inn í sjána í fyrsta sinn). Sú mynd sem birtist er samsett úr fjölda gervitunglamynda og eru árlega uppfærðir einhverjir hlutar myndarinnar.

Innrauð mynd:

Við val á þessum hnappi birtist SPOT-5 gervitunglamynd í innrauðum litum. Sú mynd sem birtist er samsett úr fjölda gervitunglamynda og eru árlega uppfærðir einhverjir hlutar myndarinnar.

Örnefni:

Ef hakað er í reitinn fyrir framan örnefni birtast örnefni í sjánni. Ef hakið er fjarlægt með því að smella á það með músinni hverfa örnefnin. Þó hverfa aldrei þau örnefni sem birtast með Atlaskortunum þar sem nöfnin eru hluti þeirra.

Aðgerðir

Eftirfarandi hnappar geta verið virkir með öðrum hnöppum, þó aðeins einn þeirra í einu.

Færa:

Sé þessi hnappur valinn virkjast sú aðgerð að hægt er að hliðra til kortinu með því að halda niðri músarhnappinum og draga þangað sem notandinn vill. Einnig er hægt að nýta örvahnappa lyklaborðsins til að hliðra kortinu þegar þessi hnappur er virkur.

Fá hnit:

Með því að velja þennan hnapp má smella á stað á myndinni/kortinu og fá upp hnit. Framsetning hnitanna er birt á þrjá mismunandi vegu þ.e. í gráðum og mínútum, í gráðum eða í ISN93.

Ath. Nákvæmni þeirra hnita sem hér birtast kann að vera nokkur en skekkja fyrir gervitunglamyndirnar getur verið allt að 15 m. Skekkja kortagagnanna kann hins vegar að vera nokkuð meiri eða frá um 5 m fyrir vegi en allt að 50 m fyrir hæðarlínur og vatnafar (sjá nánar um nákvæmni IS 50V gagnanna) Þá er einnig vert að nefna að þeir sem hyggjast nýta sér hnit úr sjánni þurfa að passa upp á að velja rétta framsetningu miðað við kort eða GPS tæki sín.

Mæla:

Sé þessi hnappur virkjaður er hægt að mæla vegalengd milli staða. Þetta er gert með því að smella með músarhnappi á upphafsstað, halda honum niðri og þannig draga músina þá leið sem mæla skal. Þegar mælingu er lokið er músarhnappi sleppt og mæld vegalengd birtist við hlið Mæla hnappsins.

Breskur eða íslenskur fáni:

Ef fánarnir eru valdir breytast hnapparnir milli þess að vera á ensku eða íslensku.

Leave a comment