Landfræðilegar upplýsingar, undirstaða átaks í umhverfismálum

Grein birt í Morgunblaðinu í maí 2007

Með nýrri og öflugri tækni hafa opinberar stofnanir og sveitarfélög hér á landi nýtt sér landfræðileg upplýsingakerfi við að kortleggja og miðla upplýsingum um Ísland. Landmælingar Íslands hafa tekið þátt í þessari þróun með því að veita aukinn aðgang að kortagögnum á vefnum og einnig hefur stofnunin lagt til við umhverfisáðuneytið að gjaldtaka fyrir stafræn kortagögn verði lækkuð stórlega eða felld alveg niður til að auka notkun korta og annarra landfræðilegra upplýsinga. Þessi þróun kallar á gott samstarf opinberra aðila og stöðluð vinnubrögð til að fjármunir ríkisins verði nýttir sem best á þessu sviði. Markmiðið er að aðgengi almennings að landfræðilegum upplýsingum sem aflað hefur verið fyrir opinbert fé verði sem auðveldast og aðilum á sviði almannavarna og öryggismála sé tryggður óhindraður aðgangur að sömu gögnum.

 

Svipuð þróun hefur átt sér stað á vettvangi Evrópusambandsins en þar hefur á undanförnum árum verið unnið að því að móta stefnu og gera tillögu að löggjöf um innra skipulag landupplýsinga í allri Evrópu. Þetta verkefni er nú í farvegi sem tilskipun sem var samþykkt í byrjun árs 2007 og hefur hún hlotið nafnið INSPIRE (INSPIRE Infrastructure for Spatial Information in Europe). Tilskipunin byggir á hinum ýmsu gögnum og upplýsingakerfum sem til eru hjá aðildarríkjunum en umhverfisráðuneytið hefur þegar lagt til að meginatriði INSPIRE verði tekin upp hér á landi.

 

Markmið INSPIRE ( http://inspire.jrc.it/ ) er að samræma og samnýta landfræðileg gögn í Evrópu, ekki síst í þágu umhverfismála. Eitt af lykilatriðum tilskipunarinnar er að landupplýsingar verði aðgengilegar án hindrana fyrir almenning og stjórnvöld og er megin áherslan lögð á stöðlun og miðlun upplýsinga. Að þessu munu Landmælingar Íslands vinna sem leiðandi stofnun í góðu og öflugu sambandi við þá sem málið kann að varða.

 

Magnús Guðmundsson

forstjóri Landmælinga Íslands

 

Leave a comment