Landupplýsingar
Landupplýsingar eru margskonar gögn og upplýsingar um umhverfið, náttúrulegt eða manngert. Megineinkenni þessara gagna er að þau eru staðsett með hnitum eða auðkenni t.d. heimilisfangi. Landmælingar Íslands tryggja að ávallt séu til aðgengilegar og traustar landupplýsingar af öllu Íslandi. Stöðugt er unnið að endurskoðun og uppfærslu landupplýsingagrunna í eigu stofnunarinnar en gögnin eru opin og aðgengileg öllum á heimasíðu stofnunarinnar og er leitast við að mæta kröfum notenda hvað varðar innihald, nákvæmni og aðgengi gagnanna. Helstu verkefni á sviði landupplýsinga eru:
-
Uppbygging og viðhald IS 50V gagnagrunnsins.
-
Gerð Corine gagnasafns um landnýtingu og landflokkun.
[button link=“https://www-gamli.lmi.is/index.php/is-50v/“ color=“default“ target=“_self“ size=“small“]Nánar um IS50 V[/button]
