Landupplýsingavefþjónn (Geoserver) býður upp á aðgengi að landupplýsingum Landmælinga Íslands í vefþjónustum. Vefþjónustur eru m.a. notaðar af sérfræðingum á sviði landupplýsinga eða lesnar af öðrum tölvum. Vefþjónusturnar er hægt að opna í sérstökum landupplýsingaforritum s.s. Qgis, Arcgis eða forritum sem hafa landupplýsingaviðbætur og eru gögnin gjaldfrjáls.
Á vefþjóninum eru eftirtaldar vefþjónustur í boði:
- WMS – skoðunarþjónusta birtir myndir af gögnum
- WFS – birtir gögnin sjálf
- WMTS – fyrirfram útbúnar myndir af gögnum, sem tryggir hraða birtingu
Til þess að sjá hvaða þekjur eru í boði, er hægt að smella á Layer Preview.
Vefþjónustur
Leiðbeiningar um opin gögn og vefþjónustur