Yfirborðslagið sýnir gróin og ógróin svæði, skipulögð svæði og stærstu svæðin sem lenda undir vatni. Lagið er einfölduð útgáfa á CORINE-verkefninu og eru upplýsingar um yfirborðið frá 2006. Notast var við SPOT-5 gervitunglamyndir, gögn frá Landbúnaðarskólanum, Skógrækt ríkisins og fleiri stofunum. Einnig fengust upplýsingar frá sveitarfélögunum.