IS 50V

Stafrænn kortagrunnur af öllu Íslandi

Stafræni gagnagrunnurinn IS 50V er stöðugt í endurskoðun og vinnslu hjá Landmælingum Íslands. Hann er í notkun hjá mörgum stofnunum og sveitarfélögum auk þess að vera nýttur í kortaútgáfu og leiðsögukerfi fyrir bíla. Við endurskoðun gagnanna er stuðst við margvíslegar heimildir og gögn s.s. GPS mælingar á vegum, ýmis myndgögn og gögn frá öðrum stofnunum og sveitarfélögum.

Útgáfuform IS 50V gagnasettsins hefur breyst í kjölfar þess að gögnin eru gjaldfrjáls. Nú er útgáfan bundin við hvert gagnasett (lag) fyrir sig og 1. júlí 2013 komu öll gagnasettin út á nýja útgáfuforminu. Síðan fer það eftir tíðni uppfærslu hvers lags, hversu oft það kemur út. Ekki er lengur talað um sérstakt útgáfunúmer heldur verður notast við útgáfudagsetningu.

Grunnurinn í IS 50V gagnasettinu samanstendur af 8 lögum. Skiptingin er eftirfarandi:

hæðargögn, mannvirki, mörk, samgöngur, vatnafar, strandlína, yfirborð og örnefni. Hægt er að sjá lýsigögn um IS 50V í  lýsigagnagátt Landmælinga Íslands.

Hægt er að fá gögnin á GeoPackage formati. Einnig er hægt að nálgast IS 50V í gegnum wms og wfs þjónustur.

IS 50V gagnasettið er í keiluvörpun Lamberts og hnattstöðuviðmiðunin er ISN2016. Öll lögin eru flokkuð eftir ÍST120:2012 staðlinum.

 

Leave a comment