Frá árinu 2015 hafa Bandaríkjamenn farið fyrir Norðurskautsráðinu sem er samstarfsvettvangur þeirra ríkja sem liggja að Norðurheimsskautssvæðinu. Samstarfið snýr að umhverfismálum, einkum loftslagsbreytingum, álitamálum varðandi nýtingu auðlinda og landakröfum á norðurslóðum. Eitt helsta framlag Bandaríkjamanna til vísindarannsókna á norðurslóðum að undanförnu er gerð landhæðarlíkans af öllu yfirborði lands fyrir norðan 60. breiddargráðu. Ísland er aðili… Continue reading Nýtt landhæðarlíkan fyrir Ísland
Alþjóðlegt málþing Sameinuðu þjóðanna um gögn fyrir Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun
Um miðjan janúar síðastliðin var fyrsta alþjóðlega málþing Sameinuðu þjóðanna um gögn fyrir Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun haldið í Höfðaborg í Suður Afríku. Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun eru víðtækustu markmið sem ríki heimsins hafa komið sér saman um en stefnt er að því að tryggja velmegun og mannréttindi um allan heim fyrir árið 2030. Á… Continue reading Alþjóðlegt málþing Sameinuðu þjóðanna um gögn fyrir Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun
Mikilvægt að samnýta gögn um lífríki hafsins
Á undanförnum árum hafa Landmælingar Íslands tekið þátt í grunngerðarverkefni sem unnið er í Portúgal og styrkt af þróunarsjóði EFTA. Verkefnið sem kallast SNIMar snýst um að safna saman gögnum sem snúa að hafsvæðum og lífríki sjávar. Hafsvæði heimsins eru mjög stór og lítið er um þau vitað, því er mikilvægt að samnýta þau gögn… Continue reading Mikilvægt að samnýta gögn um lífríki hafsins
Bæklingur um grunngerð landupplýsinga
Á undanförnum árum hafa Landmælingar Íslands unnið að því í nánu samráði við umhverfis- og auðlindaráðuneytið að byggja upp grunngerð stafrænna landupplýsinga á Íslandi. Landupplýsingar eru grunngögn sem þarf til að búa til landakort, skipulagskort eða annað sem bundið er staðsetningu. Landupplýsingar eru birtar sem línur, flákar, punktar, myndir eða textar, líkt og vegir, heimilisföng,… Continue reading Bæklingur um grunngerð landupplýsinga
Fréttabréfið Kvarðinn er komið út
Fyrsta tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands, á árinu 2017 er komið út. Þar er m.a. sagt frá nýjum kortasjám, örnefnaskráningu, úrvinnslu endurmælinga á Grunnstöðvaneti ásamt ýmsu öðru. Kvarðann má sjá hér.
Hægt að sækja kort og loftmyndir LMÍ í fullri upplausn
Hjá Landmælingum Íslands er til einstakt safn loftmynda og korta sem starfsmenn stofnunarinnar hafa unnið við á undanförnum árum, að koma á stafrænt form fyrir vefinn. Stór hluti kortanna er nú kominn á vefinn einnig mikið magn loftmynda, þó mikið verk sé enn fyrir höndum í skönnun loftmynda. Loftmyndirnar sem eru af öllu landinu eru… Continue reading Hægt að sækja kort og loftmyndir LMÍ í fullri upplausn
Jólakveðja frá Landmælingum Íslands
Nýjar uppfærslur á IS 50V
Á niðurhalssíðu Landmælinga Íslands er komin ný útgáfa þriggja gagnalaga af átta í IS 50V. Um er að ræða uppfærslu á örnefnum, mannvirkjum og samgöngum. Breytingar er mismiklar eftir lögum en flestar breytingar eru í örnefnalaginu, þar sem mikil og stöðug vinna fer fram við hnitsetningu. Skráning örnefna hefur aðallega farið fram á svæðum í Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð,… Continue reading Nýjar uppfærslur á IS 50V
Landmælingar Íslands opna nýjar kortasjár og nýja Landupplýsingagátt
Í dag 15. desember 2016 opnuðu Landmælingar Íslands nýja kortasjá https://atlas.lmi.is/kortasja/ og örnefnasjá https://atlas.lmi.is/ornefnasja/ auk þess var opnuð ný Landupplýsingagátt https://gatt.lmi.is/geonetwork/ ásamt nýrri kortasjá Landupplýsingagáttar https://kort.lmi.is/. Kerfin eru byggð á opnum hugbúnaði, Oskari og GeoNetwork en Oskari er hannaður og þróaður af systurstofnun okkar í Finnlandi. GeoNetwork er opin hugbúnaður og á bak við hann eru mörg fyrirtæki… Continue reading Landmælingar Íslands opna nýjar kortasjár og nýja Landupplýsingagátt
Könnun á vef Landmælinga Íslands 2016
Um miðjan nóvember stóðu Landmælingar Íslands fyrir könnun á notkun á vefsíðu stofnunarinnar. Þetta er í fimmta skiptið sem slík könnun er gerð og var hún var gerð bæði meðal íslenskra og enskra notenda. Könnunina nota Landmælingar Íslands m.a. til að fá fram sýn notenda á því hvernig bæta má þá þjónustu sem vefurinn hefur… Continue reading Könnun á vef Landmælinga Íslands 2016