Annað tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands, á árinu 2015 er komið út. Í blaðinu er meðal annars sagt frá ráðstefnu um grunngerð landupplýsinga, sem haldin var í apríl síðastliðnum, alþjóðlegum rannsóknarhópum sem Landmælingar Íslands taka þátt í, þá er sagt frá ávinningi þess að landupplýsingar voru gerðar gjaldfrjálsar á árinu 2013. Þar kemur meðal annars… Continue reading Kvarðinn, fréttabréf LMÍ er kominn út
Vorfundur SATS
Þann 7. og 8. maí var haldinn í Ólafsvík árlegur vorfundur Samtaka tæknimanna sveitarfélaga, Félags byggingarfulltrúa, Félags skipulagsfulltrúa sveitarfélaga og Samtaka garðyrkju- og umhverfisstjóra. Mjög fjölbreytt dagskrá var í boði þar sem fyrirlesarar innan sem utan samtaka komu með fróðleik um allt frá skráningu staðfanga til vistheimtu. Þar var einnig Ragnar Þórðarson, fyrir hönd Landmælinga… Continue reading Vorfundur SATS
Landmælingar Íslands eru fyrirmyndarstofnun 2015
Annað árið í röð eru Landmælingar Íslands fyrirmyndarstofnun í könnuninni Stofnun ársins og voru að þessu sinni í 4. sæti í flokki meðalstórra stofnana. Landmælingar Íslands hafa tekið þátt í könnuninni, sem nú fór fram í tíunda sinn, frá upphafi og ætíð verið framarlega í flokki. Könnunin sem er ein viðamesta könnun á vinnuumhverfi hjá… Continue reading Landmælingar Íslands eru fyrirmyndarstofnun 2015
Á réttri leið
Í dag fór fram á Grand Hótel í Reykjavík ráðstefna um grunngerð stafrænna landupplýsinga undir yfirskriftinni „Á réttri leið?“ Að ráðstefnunni stóðu Landmælingar Íslands og umhverfis- og auðlindaráðuneytið, en um 80 manns frá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum sóttu ráðstefnuna. Grunngerð stafrænna landupplýsinga er þegar orðin stór hluti af vinnuumhverfi þeirra sem vinna við landupplýsingar og… Continue reading Á réttri leið
Dagskrá ráðstefnu um grunngerð landupplýsinga
Fjölbreytt dagskrá verður á ráðstefnu um grunngerð landupplýsinga „Á réttri leið?“ sem haldin verður á Grand Hótel í Reykjavík 30. apríl næstkomandi. Að ráðstefnunni standa Landmælingar Íslands ásamt umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Fyrirlesarar eru frá nokkrum innlendum stofnunum og fyrirtækjum auk þriggja erlendra fyrirlesara. Meðal þess sem fjallað verður um er hvernig INSPIRE nýtist við skipulag… Continue reading Dagskrá ráðstefnu um grunngerð landupplýsinga
Landmælingar Íslands taka þátt í rannsóknarverkefni Copernicus áætlunarinnar
Copernicusáætlun Evrópusambandsins er viðamikið verkefni sem snýst um vöktun á yfirborði og umhverfi jarðarinnar og er Ísland aðili að henni í gegnum samninginn um evrópska efnahagssvæðið. Í október 2014 birti Evrópska umhverfisstofnunin upplýsingar um útboð á rannsóknaverkefni um gæða- og nákvæmnismat á gögnum sem tengjast umhverfiseftirliti samkvæmt Copernicusaráætluninni. Markmið þessa verkefnis er að styrkja Copernicusaráætlunina… Continue reading Landmælingar Íslands taka þátt í rannsóknarverkefni Copernicus áætlunarinnar
Ráðstefna um grunngerð landupplýsinga
Þann 30. apríl næstkomandi, munu Landmælingar Íslands ásamt umhverfis- og auðlindaráðuneytinu standa fyrir ráðstefnu undir heitinu „Á réttri leið“ þar sem fjallað verður um innleiðingu grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar og INSPIRE á Íslandi. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík og stendur frá kl 09:00 – 15:15. Á ráðstefnuni verður rætt um hvert hefur… Continue reading Ráðstefna um grunngerð landupplýsinga
Ársskýrsla 2014
Ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2014 er komin út. Ársskýrslan er gefin út á rafrænu formi og er hún aðgengileg hér á vef stofnunarinnar. Í ársskýrslunni er sagt frá helstu verkefnum stofnunarinnar á árinu 2014. Fram kemur í ávarpi forstjóra að sú ákvörðun að hafa opin aðgang að gögnum Landmælinga Íslands hefur hvatt til aukinnar notkunar… Continue reading Ársskýrsla 2014
Ný kortasjá LMÍ
Ný kortasjá hefur verið tekin í notkun hjá Landmælingum Íslands. Kortasjáin kemur í stað eldri kortasjá stofnunarinnar, en þær hafa nú verið sameinaðar í eina. Í kortasjánni er meðal annars hægt að velja kort með örnefnum, loftmyndir, atlaskort eða AMS kort. Þá er þar að finna sveitarfélagakort með upplýsingum um stærð sveitarfélaga og íbúarfjölda, þekju… Continue reading Ný kortasjá LMÍ
Ný lög um örnefni samþykkt á Alþingi
Fyrstu heildarlög um örnefni á Íslandi voru samþykkt á Alþingi í gær 3. mars 2015. Markmið laganna er meðal annars að stuðla að verndun örnefna og nafngiftarhefðar í landinu sem hluta af íslenskum menningararfi og tryggja að honum verði viðhaldið handa komandi kynslóðum. Einnig að samræma stjórnsýslu við skráningu örnefna þannig að ferli nafngifta sé… Continue reading Ný lög um örnefni samþykkt á Alþingi