Fréttabréfið Kvarðinn er komið út

Þriðja tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands, á árinu 2012 er komið út. Að venju er þar að finna ýmsan fróðleik um starfsemi Landmælinga Íslands. Fréttabréfið er aðeins gefið út á rafrænu formi.        

Jarðstöðin RHOF tengd jarðstöðvakerfi LMÍ

„Á dögunum var tíunda jarðstöðin tengd jarðstöðvakerfi Landmælinga Íslands. Stöðin er staðsett á Raufarhöfn og hefur skammstöfunina RHOF. Hún er kostuð af háskólanum í Savoie í Frakklandi og er í umsjón Veðurstofu Íslands og tilheyrir ISGPS neti hennar. Á næstunni er gert ráð fyrir að bæta a.m.k. tveimur stöðvum við kerfið og er þar helst… Continue reading Jarðstöðin RHOF tengd jarðstöðvakerfi LMÍ

Published
Categorized as Fréttir

Grunngerðarverkefnin framundan á haustmánuðum 2012

Landupplýsingar

Á undanförnum vikum hafa Landmælingar Íslands unnið að verkáætlun vegna grunngerðar landupplýsinga fyrir haustið 2012. Áætlunin snertir á ýmsan hátt þá opinberu aðila sem starfa með landupplýsingar og vonast LMÍ eftir góðu samstarfi hér eftir sem hingað til. Áætlun haustsins er í stórum dráttum þessi:    Lýsigögn: Lýsigögn LMÍ fyrir önnur gögn en IS 50V… Continue reading Grunngerðarverkefnin framundan á haustmánuðum 2012

Nýr kynningarbæklingur

Fyrir stuttu kom út kynningarbæklingur Landmælinga Íslands. Í bæklingnum er sagt frá helstu verkefnum stofnunarinnar í máli og myndum. Bæklingurinn liggur frammi fyrir gesti og gangandi, einnig má  skoða hann hér.        

Laust starf hjá Landmælingum Íslands

Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns tölvukerfis hjá Landmælingum Íslands (LMÍ).    Í starfinu felst m.a. rekstur á netþjónum stofnunarinnar, umsjón með afritun gagna og uppbygging á vefþjónustum.   Starfssvið:   Vinna við rekstur tölvukerfis LMÍ, aðallega netþjóna og ytri þjónustur. Vinna við vefþjónustur til að veita aðgang að gögnum LMÍ.  Umsjón með öryggisafritun á… Continue reading Laust starf hjá Landmælingum Íslands

Published
Categorized as Fréttir

Landmælingar hljóta alþjóðleg landupplýsingaverðlaun

Landmælingar Íslands hafa hlotið alþjóðleg verðlaun ESRI, sem er leiðandi fyrirtæki í landfræðilegum upplýsingakerfum í heiminum.  Verðlaunin nefnast SAG (Special Achievement in GIS) og eru þau veitt þeim sem skara framúr í notkun á hugbúnaði fyrirtækisins. Að þessu sinni hlutu um 170 stofnanir eða fyrirtæki verðlaunin úr hópi um 300.000 viðskiptavina ESRI.     Landmælingar Íslands,… Continue reading Landmælingar hljóta alþjóðleg landupplýsingaverðlaun

Nýtt hæðarlíkan og gervitunglaþekja af öllu Íslandi

Mánudaginn 18. júní samþykkti Alþingi lög sem heimila IPA stuðning ESB við uppbyggingu á NATURA 2000-samstarfsneti á Íslandi. Samkvæmt því verður allt vistkerfi og fuglalíf á Íslandi skráð með það fyrir augum að auðkenna svæði sem þarfnast verndar, einnig mun það nýtast í skipulagsvinnu og ýmsum öðrum verkefnum opinberra aðila. Landmælingar Íslands taka þátt í… Continue reading Nýtt hæðarlíkan og gervitunglaþekja af öllu Íslandi

Viðmiðunarhnitakerfi

Eitt af þemunum í viðauka 1 í INSPIRE tilskipuninni er viðmiðunarhnitakerfi (e. Coordinate Reference System | CRS). Það skal nota við birtingu og geymslu annarra INSPIRE þema Íslands og því var forgangsverkefni Landmælinga Íslands að gera tillögu að því. En fyrst skulum við aðeins fara yfir hvað viðmiðunarhnitakerfi er. Til að birta landupplýsingar á korti… Continue reading Viðmiðunarhnitakerfi

Fjölbreytilegar landupplýsingar

Systurstofnun Landmælinga Íslands í Danmörku, Kort- og Matrikelstyrelsen hafa í samvinnu við Geoforum hafa opnað spennandi vefsíðu http://brugstedet.dk  fyrir alla þá sem hafa áhuga á  Landupplýsingum og notkun þeirra. Á Brugstedet.dk er að finna safn dæma um hvernig landupplýsingar eru nýttar við ýmis verkefni og skapa um leið verðmæti fyrir opinbera aðila og einkafyrirtæki. Á… Continue reading Fjölbreytilegar landupplýsingar

Published
Categorized as Fréttir

Fundur gæðahóps EuroGeographics

Gæðahópur EuroGeographics

Í síðustu viku var haldinn fundur gæðahóps EuroGeographics. Landmælingar Íslands og Þjóðskrá stóðu sameiginlega að fundinum sem haldinn var hjá Þjóðskrá. Fundurinn var vel sóttur og voru þátttakendur um 20 frá 15 stofnunum og jafn mörgum löndum. Fjallað var m.a. um geymslu gagna, skrásetningu á gæðum gagna, ERM, ESDIN, gæðamódel og gæðaskoðun gagna og margt… Continue reading Fundur gæðahóps EuroGeographics