Nú hefur sveitarfélagakortið á sveitarfélagaskjánum verið uppfært með mannfjöldatölum miðað við 1. desember 2009. Sveitarfélög á Íslandi eru 77.
Staða landupplýsinga hjá sveitarfélögum
Landmælingar Íslands létu síðastliðið haust kanna stöðu landupplýsingagagna hjá sveitarfélögum á Íslandi. Könnunin fór fram í aðdraganda innleiðingar INSPIRE tilskipunar ESB um aðgengi og samhæfingu á landfræðilegum gögnum í Evrópu í því skyni að auðvelda aðgengi að og auka notkun landupplýsingagagna í þágu umhverfismála. Sveitarfélögin voru beðin um að svara nokkrum almennum spurningum um notkun landupplýsinga og… Continue reading Staða landupplýsinga hjá sveitarfélögum
Fagurey Breiðafirði, innrauð loftmynd tekin sumarið 2008
Jólakveðja
Fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir Ísland
Þann 15. desember síðastliðinn stóðu Landmælingar Íslands fyrir kynningarfundi í tilefni þess að nú er að verða til fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir allt Ísland. Á fundinum voru kynntar niðurstöður útreikninga vegna nýja hæðarnetsins og hugmyndir um viðhald og frekari mælingar ræddar. Alls sóttu fundinn um 60 manns frá hinum ýmsu stofnunum, sveitarfélögum og verkfræðistofum. … Continue reading Fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir Ísland
Kvarðinn er kominn út
Fréttabréf Landmælinga Íslands, Kvarðinn, er kominn út. Fréttabréfið hefur verið við lýði frá árinu 1999 og hefur verið mikilvægur tengiliður stofnunarinnar við samfélagið. Héðan í frá mun fréttabréfið vera rafrænt og koma út fjórum sinnum á ári. Starfsmenn stofnunarinnar sjá alfarið um efnistök og uppsetningu fréttabréfsins.
SPOT-5 gervitunglamyndir af Bakkafjöru
Frá árinu 2002 hafa Landmælingar Íslands staðið fyrir sameiginlegum kaupum innlendra stofnana á SPOT-5 gervitunglamyndum af Íslandi. Þessar SPOT-myndir eru nú orðnar yfir 80 talsins og þekja allt landið, en haldið er áfram að uppfæra safnið með kaupum á nokkrum myndum árlega, einkum af þeim stöðum þar sem landbreytingar eða breytingar á landnotkun hafa orðið. Nú… Continue reading SPOT-5 gervitunglamyndir af Bakkafjöru
Uppbygging sameiginlegs hæðarkerfis fyrir Ísland
Í tilefni af því að nú er að verða til fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir Ísland bjóða Landmælingar Íslands til kynningarfundar þriðjudaginn 15. desember kl. 9:00 í salnum Háteigi á Grand Hóteli. Þar munu verða haldin erindi um nýja hæðarkerfið og eru fyrirlesarar Jaakko Mäkinen FGI (The Finnish Geodetic Institute), Jón Helgason Vegagerðinni, og Guðmundur Valsson… Continue reading Uppbygging sameiginlegs hæðarkerfis fyrir Ísland
Kortlagningu landgerða á Íslandi lokið
Byggingarsvæði stækkuðu um 1059% á árunum 2000 til 2006 og jöklar minnkuðu um 1,62%. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr upplýsingum sem Landmælingar Íslands hafa tekið saman og sett á vef sem sýnir yfirborð og landgerðir á Íslandi. Gögnin verða nýtt til þess að fylgjast með breytingum á landnotkun auk þess sem þau… Continue reading Kortlagningu landgerða á Íslandi lokið
Umhverfisþing og ný skýrsla um stöðu umhverfismála
Umhverfisráðherra boðar til VI. Umhverfisþings dagana 9.-10. október 2009. Þingið fer fram á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Sjálfbær þróun verður aðalumfjöllunarefni þingsins að þessu sinni. Kynntar verða tillögur að nýjum áherslum stjórnvalda á sviði sjálfbærrar þróunar næstu árin. Einnig verður kynnt ný skýrsla umhverfisráðherra um stöðu og þróun umhverfismála. Að gerð skýrslunnar komu starfsmenn Landmælinga Íslands og… Continue reading Umhverfisþing og ný skýrsla um stöðu umhverfismála