TÍMAÁÆTLUN

Nokkrar tímasetningar eru þekktar vegna innleiðingar nýrra laga fyrir Grunngerð fyrir starfrænar landupplýsingar á Íslandi og vegna  INSPIRE-tilskipunarinnar. Þær helstu eru:

1. júlí 2011 – INSPIRE-tilskipunin tekur gildi á Íslandi þegar stjórnskipulegum fyrirvörum verður aflétt af henni innan EES samningsins.

1. desember 2011 –  Landmælingar Íslands gera ráð fyrir að opna nýja landupplýsingagátt þar sem hægt verður að færa inn lýsigögn og koma fyrir tenglum vegna skoðunarþjónustu gagnanna. Gert er ráð fyrir að einhver gögn verði komin inn í landupplýsingagáttina frá Landmælingum Íslands.

1. júní 2012 –  Landmælingar Íslands skulu koma á fót landupplýsingagátt, sbr. 5. gr. laga um Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar nr. 44/2011.

15. maí 2013 – Landmælingar Íslands skila fyrstu skýrslu sinni til Evrópusambandsins vegna innleiðingar INSPIRE á Íslandi samkvæmt reglugerð EB nr. 442/2009.

1. júlí 2013 – Lýsigögn fyrir gögn í Viðauka I og II í INSPIRE-tilskipuninni skulu tilbúin og aðgengileg í landupplýsingagátt.

1. janúar 2014 –  Fyrsta aðgerðaáætlun skv. 10. gr. laga um Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar nr. 44/2011 skal vera tilbúin til staðfestingar.

Tímasetningar fyrir innleiðingu INSPIRE-tilskipunarinnar í aðildarríkjum Evrópusambandsins eru birtar í svokölluðu leiðarkorti (Road map). Leiðarkortið gefur ágæta yfirsýn yfir það sem er að gerast í INSPIRE og er að finna á eftirfarandi vefslóð http://inspire.jrc.ec.europa.eu/index.cfm/pageid/44

Leave a comment