eENVplus

logo_eenvpluseENVplus  

er verkefni tengt samþættingu á umhverfisgögnum í Evrópu ætlað til aðstoðar við innleiðingu umhverfistilskipanna.
eENVplus er samstarfsverkefni 19 aðila frá 12 þjóðum Evrópu og er því stýrt af Ítölum. Verkefnið miðar að því að samnýta mismunandi verkfæri og verkferla,  sem hannaðir hafa verið í tengslum við ýmis verkefni Evrópusambandsins, til að auðvelda innleiðingu á t.d. INSPIRE og SEIS tilskipununum. Fjöldi þátttakenda veitir mikilvæga innsýn í innleiðingu tilskipananna í Evrópu þar sem miðlun upplýsinga og samvinna milli hins opinberra og einkaaðila skipa stóran sess við leit að lausnum.

 

Logo UmhverfisstofnunarLandmælingar Íslands og Umhverfisstofnun

Fyrir Íslands hönd taka Umhverfisstofnun og Landmælingar Íslands þátt í verkefninu og þar sem eENVplus verkefnið snýst að mestu leyti um innleiðingu INSPIRE var ákveðið að Landmælingar Íslands leiddu það hér á landi. Þátttaka í eENVplus hefur skilað góðri reynslu og ýtt undir tæknilega og faglega þróun.

 

lmi_logo

Ísland hefur fengið þriggja ára frest við innleiðingu INSPIRE-tilskipunarinnar en vegna þátttöku í eENVplus verkefninu má segja að Ísland standi nokkuð jafnfætis öðrum þjóðum við innleiðinguna og hafa starfsmenn Landmælinga Íslands því stundum kallað verkefnið INSPIRE Express.

 

inspireTilraunaverkefni

Til að aðferðafræði eENVplus nýtist sem best hinum fjölbreytta hópi notenda við margvíslegar aðstæður voru gerð tíu tilraunaverkefni þar sem níu umhverfisaðstæður voru settar fram. Útkoma tilraunaverkefnanna hefur verið notuð til að þróa betri verkfæri fyrir innleiðingu INSPIRE-tilskipunarinnar með samnýtingu nýrra og gamalla verkfæra.

Tilraunaverkefnið hjá Landmælingum Íslands var hinsvegar tvíþætt:

  • Að útbúa INSPIRE aðlöguð gögn (Harmonized gögn) og miðla þeim með þjónustum.
  • Að útbúa smáforrit fyrir snjalltæki, byggt á INSPIRE-tækum þjónustum, þar sem hægt er að skrá umhverfisupplýsingar s.s. um tilvist fossa, skemmd á náttúru eða farartálma á slóðum.

 

Hver er reynslan?

Við höfum nú aukna þekkingu á aðlögun íslenskra landupplýsinga að kröfum INSPIRE-tilskipunarinnar. Þetta þýðir:

  • Þekking á notkun á HALE vörpunarforritinu.
  • Betri þekking á tólum til að gæðatékka gögn s.s. lýsigögn.
  • Aukin þekking á GML formati gagna.
  • Þekking á lestri INSPIRE-leiðavísa.

Við höfum nú þegar þekkingu í:

  • Hönnun á smáforritum fyrir snjalltæki.
  • Kröfum á INSPIRE-þjónustum.

Auk þess geta allir haft aðgang að ýmsum vefnámskeiðum vegna verkefna tengdum innleiðingu INSPIRE-tilskipunarinnar, þá hefur samstarf við önnur Evrópulönd stuðlað að miðlun á þekkingu og reynslu.

Við innleiðingu Evróputilskipananna er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir margvísleg hjálpargögn sem hafa verið smíðuð í tengslum við mismunandi verkefni Evrópusambandsins.  Þannig sparast fjármagn hjá öllum og innleiðingin ætti að vera auðveldari. Þá er ljóst að innleiðing INSPIRE krefst þolinmæði, símenntunar starfsfólks og samstarfs innanlands sem utan.