Lög um grunngerð fyrir starfrænar landupplýsingar hafa það að markmiði að „byggja upp og viðhalda grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á vegum stjórnvalda og tryggja aðgengi stjórnvalda og almennings að landupplýsingum um Ísland.“
Sveitarfélögin eru mikilvægir aðilar í grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi. Litið er á hvert og eitt þeirra sem sjálfstæða aðila innan grunngerðarinnar rétt eins og litið er á ríkisstofnanir, en ekki sem eina heild eða sem landshlutaeiningar. Hvert og eitt sveitarfélag ber því sjálft ábyrgð á að uppfylla kröfur laga nr. 44/2011 um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi og þá í leiðinni kröfur INSPIRE tilskipunar Evrópuráðsins og –þingsins. Ekkert mælir þó á móti því að sveitarfélög eða aðrir opinberir aðilar vinni saman að uppfyllingu laganna, til að mynda með sameiginlegum vefþjónustum, samræmingu gagnasafna eða öðrum hætti.
Ábyrgð og skyldur
Ábyrgð og skyldur opinberra aðila gagnvart lögum nr. 44/2011 snúa að því að gera stafrænar landupplýsingar, í sinni eigu eða forsjá, aðgengilegar. Reglugerð nr. 414/2014 skilgreinir þá gagnaflokka, svokölluð þemu, sem lögin um grunngerð ná yfir. Ekki er gerð krafa um að gerð séu ný gögn til að uppfylla lögin eða tilskipunina en þau gögn sem til eru skulu að öllu jöfnu vera gerð aðgengileg. Aðgengi að landupplýsingum er í grunninn tvíþætt.
- Fyrst þarf að skrá lýsigögn (e. Metadata) um öll gagnasöfn og gagnaþekjur í Lýsigagnagáttina en hvert sveitarfélag hefur einn skráningaraðgang sem sótt eru um hjá LMÍ. Lýsigögn eru lykillinn að aðgenginu, því enginn getur notað gögn sem ekki er hægt að finna. Skráning lýsigagna fyrir öll landupplýsingagögn sveitarfélaga sem falla undir lög nr. 44/2011 þarf að vera lokið og aðgengileg inni í landupplýsingagáttinni fyrir lok árs 2016.
- Síðan þarf að gera gögnin aðgengileg til skoðunar með sérstökum vefþjónustum t.d. sem WMS, WFS eða öðrum þjónustum. Þannig getur „kortasjá“ Landupplýsingagáttarinnar jafnt og notendur nálgast gögnin t.d. til notkunar í sínum landupplýsingaforritum eins og QGIS eða ArcGIS (Athugið sérstaklega að hér er ekki átt við kortavefsjá sveitarfélags sem má opna í netvafra). Á mjög einföldu máli veita vefþjónustur fyrir stafrænar landupplýsingar notendum beinan aðgang að gögnum og liggja slíkar vefþjónustur t.a.m. að baki kortavefsjám.
Þemu landupplýsinga sem heyra undir grunngerð landupplýsinga
Þau landupplýsingagögn sem búast má við að sveitarfélög eigi á einu eða öðru formi (CAD, Microstation, Arc o.fl.) og í mismunandi umfangi (hluti sveitarfélagsins eða allt sveitarfélagið) eru:
Örnefni – T.d. í skipulagsuppdráttum. Mætti koma til Landmælinga Íslands
Heimilisföng / Staðföng – Þeim ætti að koma til Þjóðskrár
Landareignir og lóðir / Skikar – Þeim ætti að koma til Þjóðskrár
Samgöngur – Ýmsir tæknilegir uppdrættir innihalda íhluti þessa þema, t.d. útlínur gatna o.s.frv.
Verndarsvæði – Hverfisvernd sem og önnur vernduð svæði – þarf ekki að vera friðlýst.
Hæð – Hæðargögn og líkön unnin fyrir sérstök verkefni, t.d. ofanflóð eða aðrar framkvæmdir.
Uppréttar fjarkönnunarmyndir – Loftmyndir teknar af sveitarfélaginu sem það hefur keypt til eignar.
Byggingar – Útlínur mannvirkja á skipulagsuppdráttum
Landnotkun – Skipulagsuppdrættir
Veitur og þjónusta á vegum stjórnvalda – Veitufyrirtæki eru í eigu opinberra aðila oftast sveitarfélaga.
Umhverfisvöktunaraðstaða – Önnur en á vegum UST, MAST eða annarra stofnana.
Framleiðslu og iðnaðaraðstaða – Hugsanlega úr skipulagsuppdráttum
Aðstaða fyrir landbúnað og lagareldi – Hugsanlega úr skipulagsuppdráttum
Svæði sem lúta stjórnun/takmörkunum/reglugerðum og skýrslugjafareiningum – T.d. losunarstaðir, vatnsverndarsvæði o.s.frv.
Náttúruleg áhættusvæði – T.d. ofan- eða sjávarflóðasvæði
Orkuauðlindir – Skipulagsuppdrættir og leyfisveitingar
Jarðefnaauðlindir – Skipulagsuppdrættir og leyfisveitingar