Skráning og flokkun landupplýsinga – uppbygging fitjuskráa – 2. útgáfa

Önnur útgáfa staðalsins ÍST 120 Skráning og flokkun landupplýsinga – Uppbygging fitjuskráa kom út 20. júlí 2012 í kjölfar frumvarpsferlis sem hófst í apríl. Fyrsta útgáfa staðalsins kom út árið 2007 en hann hefur tekið verulegum breytingum í nýju útgáfunni. Breytingarnar má rekja til þess að annars vegar er verið er að koma til móts við kröfur notenda staðalsins með því að gera hann einfaldari og skýrari. Hins vegar hefur hugtakanotkun verið rýnd og hugmynda- og aðferðafræðin endurskoðuð í samræmi við alþjóðlega staðla á sviði landupplýsinga.

Þegar formleg endurskoðun fyrstu útgáfu staðalsins hófst voru sett fram markmið um það sem ætti að hafa að leiðarljósi fyrir nýja útgáfu. Leitast yrði við að bæta aðgengi að fitjuskránum og þar með að ná til enn fleiri notenda / framleiðenda landupplýsinga.

Í fyrstu útgáfu staðalsins voru allar fitjueigindir hluti af staðlinum en ákveðið var að hverfa frá þessu fyrirkomulagi. Í annarri útgáfu staðalsins er aðferðafræðinni lýst, þemum (áður yfirflokkar), fitjuflokkum (áður fitjutegundir) og sameiginlegum fitjueigindum sem ætti alltaf að skrá. Fitjuskrárnar sjálfar með fitjueigindum fitjuflokkana eru ekki hluti af staðlinum eins og í fyrstu útgáfu. Fitjuskrárnar eru aðgengilegar hér á heimasíðu LMÍ þar sem þær eru uppfærðar reglulega og hægt að ná í þær án endurgjalds. Með þessu móti er auðveldara að koma til skila öllum breytingum sem þarf að gera á fitjuskránum. Þetta auðveldar uppfærslu fitjuskránna óháð uppfærslu staðalsins. Breytingar í fitjuskrám eru oft tengdar breytingum af mismunandi toga í umhverfinu og það þarf að vera mögulegt að bregðast skjótt við og uppfæra einstakar fitjuskrár óháð hverri annarri eða staðlinum sjálfum.

Landmælingar Íslands (LMÍ) og LÍSA samtök um landupplýsingar á Íslandi (LÍSU samtökin) hafa staðið saman að uppbyggingu staðalsins alveg frá upphafi, ásamt Samskipta- og staðlanefnd LÍSU (SSL-nefnd). Að verkefninu kemur einnig Tækninefnd FUT og LÍSU sem kom að lokafrágangi og frumvarpsferlinu. Landmælingar Íslands hafa yfirumsjón með verkefninu. Fitjuskrárnar sjálfar eru ýmist alfarið unnar af viðeigandi fagstofnununum eða í samvinnu við þær.

Meginmarkmið þessa staðals og fitjuskránna sem tengjast honum er að tryggja:
  • skilvirkari samskipti með gögn
  • nákvæmari skráningu landupplýsinga
  • samræmda skráningu fitja og eiginda í landupplýsingakerfum
  • að til séu skýrar skilgreiningar á flokkun landupplýsinga
  • að fitjur og eigindir fitja verði einungis skráðar á einn hátt og á einum stað í flokkunarkerfinu
  • auðveldara viðhald fitjuskráa
  • skýrar reglur um viðhald og uppfærslur á fitjuskrá
  • að nýskráningar verði einfaldar og möguleikar ótakmarkaðir
Samskipta og staðlanefndi LÍSU skipa:

Anna Guðrún Ahlbrecht (Landmælingar Íslands)

Björn Traustason (Skógrækt Ríkisins)

Kristján Sigurjónsson (Landupplýsingadeild Reykjavíkurborgar)

María Thors (Orkuveita Reykjavíkur)

Tryggvi Már Ingvarsson (Þjóðskrá Íslands)

Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir (LÍSA)

Tækninefnd LÍSU og FUT skipa:

Árni Geirsson (Alta)

Eggert Ólafsson (Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar)

Gunnlaugur M. Einarsson (ÍSOR)

Leave a comment