ÍST 120:2012 Skráning og flokkun landupplýsinga – Uppbygging fitjuskráa
Í staðlinum eru þemu, fitjuflokkar og sameiginlegar eigindir sem ætti alltaf að skrá, hugmyndafræðin og skýringar. Þetta er staðall í umsjón og dreifingu Staðlaráðs Íslands sem getur staðið sem sjálfstætt plagg. Vísað er úr staðlinum í fitjuskrár sem eru óháðar hver annari. Staðlaráð Íslands sér alfarið um sölu og dreifingu staðalsins.
- Staðalinn er hægt að kaupa á heimsíðu Staðlaráðs
- Athugasemdir við staðalinn eru sendar á Staðlaráð stadlar@stadlar.is
Breytingaferli
Nýjar útgáfur staðalsins eru þróaðar í SSL nefnd LÍSU og tækninefnd FUT sem er á vegum Staðlaráðs. Frumvarp að nýjum staðli er alltaf auglýst og tekur Staðlaráð á móti athugasemdum.
ÍST 120 er endurskoðaður á 3 – 5 ára fresti.
Fitjuskrár
Hverju þema staðalsins tengjast fitjuskrár, ein eða fleiri. Þær eru aðgengilegar á þessari heimasíðu. Vinnuhópar (faghópar) fyrir hverja fitjuskrá sjá um þróun efnisinnihalds. LMÍ fylgir verkefninu eftir í samvinnu við SSL nefnd LÍSU.
- Fitjuskrárnar eru aðgengilegar á heimsíðu LMÍ
- Athugasemdir við fitjuskrárnar eru sendar á lmi@lmi.is
- Ábyrgðaraðili vegna innihalds eru viðkomandi fagstofnanir
- Endanlegur ábyrgðaraðili vegna skjalastýringar er LMÍ.
Breytingaferli
Breytingar á fitjuskrám eru í höndum viðkomandi fagstofnana. LMÍ hefur eftirlit með því hvort um tvítekningar sé að ræða.
Dæmi: slóðar, girðingar, skurðir, allt fitjueigindir sem eru notaðar af mismunandi aðilum og koma jafnvel fram í fleiri en einni fitjuskrá. Því þarf að hafa eftirlit með því að sama „form“ sé á fitjueigindunum.
Allar fitjuskrár fara í gegnum samþykktarferli áður en þær eru birtar á heimasíðu LMÍ.
Fitjuskrár eru endurskoðaðar eins oft og þörf er á.
[button link=“https://www-gamli.lmi.is/wp-content/uploads/2012/09/ist_120_kynning_april2012.pdf“ color=“default“ target=“_blank“ size=“small“]Kynningarefni[/button] [button link=“https://www-gamli.lmi.is/index.php/islensk-fitjuskra-vinnuhopar/“ color=“default“ target=“_self“ size=“small“ title=“Íslensk fitjuskrá – vinnuhópar“]Íslensk fitjuskrá – vinnuhópar[/button]
[button link=“https://www-gamli.lmi.is/index.php/skraning-og-flokkun-landupplysinga-uppbygging-fitjuskraa-2-utgafa/“ color=“default“ target=“_self“ size=“small“ title=“Skráning og flokkun landupplýsinga“]ÍST 120:2012 Skráning og flokkun landupplýsinga[/button]
[button link=“https://www-gamli.lmi.is/index.php/islensk-fitjuskra/“ color=“default“ target=“_self“ size=“small“ title=“Íslenskar fitjuskrár“]Íslenskar fitjuskrár[/button]