Vörpunarforrit
Með tilkomu GPS tækja, aukinni notkun á landupplýsingum, auknum almennum áhuga á umhverfismálum og, síðast en ekki síst, með aukinni ferðamennsku sem krefst notkunar korta, verður merking hnita og mismunandi skilgreiningar á kortaviðmiðunum sífellt mikilvægari.
Notendur á Íslandi, hvort sem það eru heimamenn eða aðkomumenn, atvinnumenn eða leikmenn, þurfa að kljást við mörg mismunandi hnitaform, hnitakerfi, kortaviðmiðanir og varpanir. Oft er breytingin milli mismunandi kerfa eina fyrirstaðan fyrir réttri notkun.
Til að uppfylla hluta af skyldum stofnunarinnar gagnvart almenningi bjóða Landmælingar Íslands forritin cocodati og Varpa sem gera öllum notendum kleift að varpa/reikna á milli hnitakerfa sem eiga við á Íslandi.