Nýjar SPOT-5 myndir – kortlagning á breytingum lands

Stafrænir gagnagrunnar Landmælinga Íslands, svo sem IS 50V, þurfa að vera í stöðugri endurskoðun til þess að úreldast ekki og breytingar á landgerðum og landnotkun eru uppfærðar eins fljótt og því verður við komið. Við þá vinnu eru m.a. notaðar nýjar SPOT-5 gervitunglamyndir. Samkvæmt niðurstöðum CORINE verkefnisins eru helstu náttúrulegu breytingarnar á landinu milli áranna 2000 og 2006 þær að jöklar hopa (minnkuðu um 180 km2 ) og margar jökulár breyta um farvegi. Margar breytingar eru hins vegar manngerðar (t.d. þéttbýli, vegir og skógrækt) og við kortlagningu þeirra eru SPOT-5 myndir einnig notaðar.
Á Reyðarfirði hafa á undanförnum árum verið miklar framkvæmdir vegna nýs álvers Alcoa Fjarðaáls eins og sjá má á SPOT-5 mynd sem tekin var 10. sept. 2009. Eldri SPOT-5 mynd, tekin 28. ágúst 2003, er til af þessu svæði, en þá voru framkvæmdir við álverið ekki hafnar.
Sjá einnig landbreytingar í tengslum við gerð Landeyjahafnar á Bakkafjöru.
