Hæðarlíkanið er byggt á 20×20 metra myndeiningum með hæðargildum. Það var unnið hjá Landmælingum Íslands úr IS 50V hæðarlínum og notast var við áætluð hæðargildi á yfir hundrað stærstu vötn landsins til þess að fá slétta fleti í hæðarlíkanið. Sjórinn var nýttur sem núll-gildi. Einnig var notast við GPS-vegamælingasafn Landmælinga Íslands, aðallega á hálendinu. Hæðarlíkanið er til á img skráarsniði.