Um langt árabil hafa verið í notkun á Íslandi nokkur aðskilin hæðarkerfi, flest á vegum Orkustofnunar og Vegagerðarinnar, einnig staðbundin hæðarkerfi nokkurra stofnana og sveitarfélaga. Á milli þessara hæðarkerfa er oft talsverður hæðarmunur sem getur leitt af sér kostnaðarsamar mælingar þegar framkvæmdir á vegum ríkisins eða sveitarfélaga ná yfir fleiri en eitt hæðarkerfi.
Eitt af mikilvægustu verkefnum Landmælinga Íslands hefur verið uppbygging og viðhald á sameiginlegu hæðarkerfi fyrir allt Ísland með það að markmiði að leggja samfélaginu til áreiðanlegan grundvöll fyrir hæðarmælingar. Allt frá árinu 1992 hafa Landmælingar Íslands, Vegagerðin og um tíma Landsvirkjun átt farsælt samstarf, við svokallaðar hallamælingar. Markmið þessa langtímaverkefnis er að búa til og viðhalda einu sameiginlegu hæðarkerfi fyrir allt Ísland, og sem uppfyllir nákvæmis- og gæðakröfur notenda. Nákvæmni hallamælinga hefur verið +/- 3,2 mm/km eða betri.
Þann 16. mars 2011 gáfu Landmælingar Íslands út í fyrsta sinn sameiginlegt hæðarkerfi fyrir Ísland. Kerfið er kallað Landshæðarkerfi Íslands og er viðmiðunin ISH2004. Tilkoma sameiginlegs hæðarkerfis markaði stór tímamót í sögu landmælinga á Íslandi. Á sama hátt og viðmiðunin ISN93 skapaði grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hnitakerfi mun ISH2004 skapa grundvöll fyrir alla til að vinna í sama hæðarkerfi. Eitt samræmt hæðarkerfi er mikilvægt fyrir ýmsar framkvæmdir s.s. vegagerð og jarðgangnagerð og á ýmsum sviðum umhverfisvöktunar, skipulags og áætlanagerðar. Auk þess munu gögnin nýtast við rannsóknir á jarðskorpuhreyfingum eða breytingum á yfirborði sjávar.
[button link=“https://www-gamli.lmi.is/wp-content/uploads/2012/05/Landshaedarkerfi.pdf“ color=“default“ target=“_blank“ size=“small“]Landshæðarkerfi – Skýrsla 12,2 MB[/button] [button link=“https://www-gamli.lmi.is/wp-content/uploads/2012/07/Landshaedarkerfi_taeknuskyrsla.pdf“ color=“default“ target=“_blank“ size=“small“]Tækniskýrsla 1,9 MB[/button]
