Eldri getraunir

Júní 2020

Rétt svar við getraun júnímánaðar er Blönduhlíð og fjallið lengst til vinstri á myndinni heitir Glóðafeykir. Á síðunni www.skagafjörður.is má lesa ýmsan fróðleik um sögu, menningu og landafræði Skagafjarðar.

Aftur drógum við nafn Jóns Hávarðs Jónssonar úr réttum svörum, en nafn hans var dregið úr réttum svörum í mars síðastliðnum.

 

 

Maí 2020

Rétt svar við getraun maímánaðar var Tungufljót. Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnum 19. júlí 1906. Að þessu sinni voru ekki margir með rétt svar, en nafn Björns Bogasonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Apríl 2020

Rétt svar við getraun aprílmánaðar er Akureyri. Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnum upp úr aldamótunum 1900.

Nafn Hauks Árna Björgvinssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Mars 2020

Rétt svar við getraun marsmánaðar er Hrísey. Myndin sýnir uppdrátt danskra landmælingamanna frá árinu 1931. Hægt er að skoða gömul kort, bæjarteikningar og gamlar ljósmyndir í sögusjá Landmælinga Íslands.

Nánar má lesa um það og sjá leiðbeiningar í frétt á vef Landmælinga Íslands.

Nafn Jóns Hávarðs Jónssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

Febrúar 2020

Rétt svar við getraun febrúarmánaðar er Sandgerði. Myndin var tekin 9. ágúst 1954.

Nafn Gunnlaugs Steinarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Janúar 2020

Rétt svar við getraun janúarmánaðar er Kirkjubæjarklaustur. Myndin var tekin 6. júní 1957.

Nafn Ragnhildar Hólm Sigurðardóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Desember 2019

Rétt svar við getraun desembermánaðar er Suðureyri. Myndin var tekin 16. október 1958.

Nafn Óskars Ingimars Gunnarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Nóvember 2019

Rétt svar við getraun nóvembermánaðar er Arnarstapi. Myndin var tekin 7. júlí 1959.

Nafn Jóhannesar Eggertssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Október 2019

Rétt svar við getraun október mánaðar er Húsavík. Myndin var tekin 4. ágúst 1955.

Nafn Ómars Vals var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

September 2019

Rétt svar við getraun september mánaðar er Vík í Mýrdal. Myndin var tekin 11. júlí 1975

Nafn Jóhanns Guðmundssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

Ágúst 2019

Rétt svar við getraun ágústmánaðar er Hellissandur. Á vef Snæfellsbæjar má sjá fróðleik um Hellissand. Myndin var tekin 13. ágúst 1985

Nafn Björns Bogasonar var dregið úr réttum svörum.

 

Júlí 2019

Rétt svar við getraun júlímánaðar er Akrafjall.  Myndin var tekin 27. júní 2019.

Myndin er tekin úr Melasveit yfir Grunnafjörð

Nafn Mána Gautasonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Júní 2019

 

Rétt svar við getraun júnímánaðar er Hólmavík.  Myndin var tekin 13. júlí 1974.

á vesíðunni Upplifðu Vestfirði stendur meðal annars:

Hólmavík er stærsti þéttbýlisstaðurinn á Ströndum. Þorpið stendur við Steingrímsfjörð og tilheyrir sveitarfélaginu Strandabyggð. Líkt og algengt er með íslensk þorp og bæi tók þéttbýli að myndast þar seint á 19. öld. Á Hólmavík hefur verið stunduð verslun frá árinu 1895 en elsta byggingin sem þar stendur er verslunarhús sem kaupmaðurinn Richard Peter Riis reisti árið 1897. Þar er nú rekið hið rómaða veitingahús Café Riis.“

Nafn Sævars Þórs Halldórssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Maí 2019

Svarið við getraun maímánaðar er Hvanneyri. Myndin var tekin 29 júní 1974.

Á Hvanneyri er rekinn Landbúnaðarháskóli

Nafn Nínu Gunnarsdóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

 

Apríl 2019

Svarið við getraun marsmánaðar er Borðeyri. Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnum 27 ágúst 1908.

Á Vísindavefnum er að finna heilmikinn fróðleik um Borðeyri

Nafn Hauks Hafliða Nínusonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Mars 2019

Svarið við getraun marsmánaðar er Raufarhöfn. Myndin var tekin 14. júlí 1974.

Á vef Raufarhafnar má sjá ýmsan fróðleik um sjávarþorpið sem stendur á austurströnd Melrakkasléttu.

Rafn Ragnheiðar Glóar Gylfadóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Febrúar 2019

Svarið við getraun febrúarmánaðar er Ófeigsfjörður. Myndin var tekin 9 maí 1975.

Um Ófeigsfjörð segir á vefnum www.nat.is:„Ófeigsfjarðarflói greinist í þrjá firði, Ingólfsfjörð austast, Ófeigsfjörð í miðju og Eyvindarfjörð vestast.  Þessir firðir voru nefndir eftir þremur bræðrum, sonum Herrauðs hvítaskýs í Noregi, sem námu þar land.  Ófeigsfjörður var í eyði samkvæmt jarðabókinni 1706 en byggðist fljótlega efti það.“ 

Nafn Arons Skúlasonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Janúar 2019

Á visir.is er sagt frá því, 22.febrúar 2017, þegar allir íbúar Flateyjar ákváðu saman að flytja á brott. Þar er einnig hægt að sjá viðtal við tvo gamla Flateyinga.

 

Nafn Nönnu Harðardóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Desember 2018

Getraun desembermánaðar reyndist ekki öllum auðveld en rétt svar við henni er Heimaey á Breiðafirði. Teikningin var gerð af dönskum landmælingamönnum árið 1911.

Í Árbók Ferðafélags Íslands frá 1989 stendur á bls. 208:
„Heimaey er á mörkum þess að vera ein eyja eða nokkrar samhangandi í alllangri keðju. Bjarneyingar munu stundum hafa notað fleirtöluna, Heimaeyjar, um þær í heild. Þar er austast Heimaeyjan sjálf eða Bæjarey eins og hún nefndist líka, þar sem byggðin stóð. Þaðan til suðvesturs liggja Torfey og Vatnsey ásamt Vatnesyjarhólmum, Brennisklettum o.fl.“

Nafn Einars Karls Ólafssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Nóvember 2018

Rétt svar við getraun nóvembermánaðar er Grímsstaðir á Fjöllum. Myndin var tekin 1. ágúst 1991.

Á vefnum Wikipedia segir: „Grímsstaðir (á Fjöllum) er bær á Hólsfjöllum og fyrsti bær sem komið er að þegar farið er austur yfir Jökulsá á Fjöllum. Brú yfir ána á þessum stað var byggð árið 1947 en þar var áður lögferja. Bærinn stendur í dag nokkrum kílómetrum norðar en áður en hann var færður vegna sandfoks. Á Grímsstöðum var eitt sinn bænhús en þar er nú örlítil ferðaþjónusta. Þar hefur verið mönnuð veðurathugunarstöð frá árinu 1907, en 21. janúar 1918 mældist þar, ásamt á Möðrudal, lægsti hiti á Íslandi, -38°C.“

Nafn Frank Petersen var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Október 2018

 

Skiljanlega var erfitt að átta sig á myndinni sem fylgdi getraun októbermánaðar og ekki mörg svör sem bárust. Myndin sem tekin er af Rangárbökkum árið 1907, er af tjaldbúðum danskra landmælingamanna og þar sést áin Rangá.

Í Loftmyndasafni Landmælinga Íslands er að finna stórt safn loftmynda sem teknar voru á árunum 1937 til 2000 og hefur mörgum þeirra verið komið á rafrænt form.

Nafn Hermanns Jakobs Hjartarsonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

September 2018

Ekki vafðist fyrir mörgum að svara getraun septembermánaðar rétt. Þó fengum við svör eins og Ísafjörður og Hornafjörður. Að sjálfsögðu var svarið Akranes, en Akranes er heimbær Landmælinga Íslands.

Í Sögusjá Landmælinga Íslands má sjá margar skemmtilegar bæjarteikningar og ljósmyndir danskra landmælingamanna sem voru við störf á Íslandi upp úr aldamótunum 1900.

Á myndinni sem fylgir hér sjáið þið teikninguna af Akranesi í heild þar sem nafnalisti fylgir. Mörg þessara nafna lifa góðu lífi enn þann dag í dag og má þar til dæmis nefna Krókalón, Steinsvör, Breið og Háteig.

Nafn Kristjans Torr var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Ágúst 2018

Nokkuð margir voru með rétt svar við getraun ágústmánaðar, en rétt svar er Flúðir. Myndin var tekin 17. ágúst 1974.

Á vefsíðunni Wikipedia segir um Flúðir:  „Flúðir er þorp í Hrunamannahreppi. Þar bjuggu 419 manns árið 2015. Þéttbýli hóf að myndast að Flúðum í kringum gróðurhúsarækt og er það í dag ein helsta atvinna staðarins. Stærstu vinnustaðir eru Límtré og Flúðasveppir. Á Flúðum er grunnskóli og skóli fyrir 8. til 10. bekk sem þjónar einnig Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Í kringum Flúðir eru mikil útirækt en einnig gróðurhúsarækt sem nýtir jarðvarmann á svæðinu.“

Nafn Viðars Huginssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Júlí 2018

Rétt svar við getraun júlímánaðar er Dýrafjörður. Myndin var tekin frá brúnni yfir fjörðinn 6. júlí 2018. Lengst til hægri á myndinni má sjá Sandafell sem stendur ofanvert við Þingeyri. Á Þingeyrarvefnum má finna ýmsar upplýsingar um gönguleiðir í Dýrafirði.

Nafn Jóhanns Bragasonar var dregið úr réttum svörum.

Júní 2018

Rétt svar við getraun júnímánaðar er Patreksfjörður. Myndin var tekin 7. júlí 1908 og fróðir menn segja okkur að húsið á myndinni sé gamli spítalinn sem byggður var 1902.

Einn þeirra sem svöruðu getrauninni sendi okkur hlekk á skemmtilega mynd sem sýnir nokkurn veginn sama sjónarhorn en er auðvitað töluvert nýrri. Myndin er á vefnum www.westfjords.is

Nafn Magna Hreins Jónssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

Maí 2018

Rétt svar við getraun maímánaðar er Kvíslarvatn. Myndin var tekin 20. ágúst 2000.

Hægt er að sjá hvar á landinu vatnið er með því að fara í Örnefnasjá Landmælinga Íslands og slá nafnið inn í leitina.

Nafn Guðrúnar Jensdóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Apríl 2018

Í getraun aprílmánaðar var mynd af korti sem teiknað var af dönskum landmælingamönnum árið 1931. Spurt var um heiti á dalnum fyrir miðri mynd og rétt svar er Fnjóskadalur.

Á vefnum Norðausturland segir meðal annars: „Fnjóskadalur er gróðursæll og víða skógi vaxinn, enda merkir orðið fnjóskur þurrt viðarsprek. Um miðbik dalsins, austan Fnjóskár er Vaglaskógur, annar stærsti skógur landsins og með þeim stórvaxnari.“

Nafn Jóns Kr. Arasonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Mars 2018

Rétt svar við getraun marsmánaðar er Héraðsvötn. Myndin var klippt út úr Kortasjá Landmælinga Íslands.

Í frjálsa alfræðiritinu Wikipedia segir m.a. um Héraðsvötn: „Héraðsvötn (oft stytt í Vötn eða Vötnin, en fyrr á öldum kölluð Jökulsá) er jökulá í Skagafirði og er eitt mannskæðasta vatnsfall á Íslandi. Héraðsvötn verða til þegar Austari- og Vestari-Jökulsá koma saman neðan við bæinn Tunguháls, auk þess sem til þeirra renna Norðurá, Húseyjarkvísl og margar smærri ár. Í miðri Blönduhlíð skiptast Héraðsvötn síðan í tvær kvíslar sem renna til sjávar sitt hvoru megin við Hegranes. Kallast kvíslarnar Vestari- og Austari-Héraðsvötn.“

Nafn Sigrid Forskov var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Febrúar 2018

Rétt svar við getraun febrúarmánaðar er Vestmannaeyjar. Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnum 10. júní 1910. Þar sjást Miðklettur og Ystiklettur, en ekki fylgir myndinni hverjir eru þarna á ferð. Nokkrir svarendur geta sér til um að þarna sigli skipið e.s. Sterling inn í höfnina.

Nafn Maríu Berglindar Þráinsdóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Janúar 2018

Ekki vafðist rétt svar við janúargetrauninni fyrir mörgum en svarið er Öskjuvatn. Á Vísindavef Háskóla Íslands eru spurningunni „Hver eru dýpstu stöðuvötn á Íslandi?“ velt upp. Þar má meðal annars sjá að Öskjuvatn er 220 m djúpt.

Nafn Davíðs Sigurðssonar var dregið út réttum svörum.

 

 

 

 

Desember 2017

Rétt svar við getraun desembermánaðar var fossinn Mígandi í Bergá í Nesjum í Hornafirði.  Myndina er að finna í Kortasjá Landmælinga Íslands undir Sögulegum ljósmyndum Dana.

Nafn Einars Ólafs Karlssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Nóvember 2017

Nokkuð margir voru með rétt svar við getraun nóvembermánaðar, sem var Langavatn. Langavatn er í Mýrasýslu í sunnanverðum Langavatnsdal í 215 m hæð yfir sjó.

Myndin var klippt út úr korti í Kortasjá Landmælinga Íslands.

Nafn Ástu Beck var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Október 2017

Rétt svar við getraun októbermánaðar er Þórsmörk. Þarna má sjá Útigönguhöfða og Morrisheiði í baksýn. Myndin er tekin af dönskum landmælingamönnum upp úr aldamótunum 1900.  Oft fáum við fróðlegar upplýsingar frá þeim sem senda inn svör. Um leið og við þökkum fyrir það birtum við nokkrar þeirra hér:

,,Myndin er tekin líklega úr Langadal á Þórsmörk, yfir á Goðaland, fjöllin eru Réttarfell (t.h.), Eystri-Hatt í forgrunni, þar bak við Útigönguhöfði og Morinsheiði skagar út bak við Útigönguhöfða.“

„Útigönguhöfði er fjall ofan við Bása í Goðalandi. Fjallið er 805 metra hátt og liggja gönguslóðar austan og vestan megin við það. Stígar liggja norður á Fimmvörðuháls og suður í Bása og Þórsmörk þar sem er ferðamannaaðstaða.“

„Myndin er tekin í Goðalandi, nokkur hundruð metra fyrir austan Álfakirkju undir Réttarfelli sem sést í hliðar hægra megin á myndinni. Fyrir miðri mynd ber Bólfell í Útigönguhöfða og vinstra megin við Útigönguhöfða sést Heiðarhorn sem gengur norður af Morinsheiði.“

„Myndin er tekin Þórsmörk, nánartiltekið frá Langadal. Fremri-Hattur og Hattfell vinstrameigin á myndinni. Útigönguhöfða ber fyrir ofan Fremri-Hatt og Heiðarhorn á Morinsheiði lengst í fjarska fyrir ofan Votupalla.“

Nafn Hreins Óskarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

September 2017

Rétt svar við getraun septembermánaðar er Hella. Myndin var tekin 21. ágúst 1981. Á vefnum Upplifðu Suðurland kemur fram að Hella sé helsti þéttbýlis- og atvinnukjarni í Rangárþingi ytra og árið 2011 voru íbúarnir 781.

Nafn Ríkarðs Guðmundssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Ágúst 2017

Rétt svar við getraun ágústmánaðar er Hólmavík. Teikninguna gerðu danskir landmælingamenn árið 2012. Hólmavík stendur við Steingrímsfjörð og er í dag stærsti þéttbýlisstaðurinn á Ströndum.

Nafn Kára Hólm var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Júlí 2017

Rétt svar við getraun júlímánaðar er Djúpavík. Myndin er úr loftmyndasafni Landmælinga Íslands og var tekin 31. ágúst 1976. Á Djúpavík var opnuð síldarverksmiðja árið 1935 og „var hún stærsta og flottasta síldarverksmiðja á landinu“ eins og segir á vefnum Upplifðu Vestfirði. Þar má finna meiri fróðleik um Djúpavík og Árneshrepp á Ströndum.

Nafn Unnars Núma Almarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Júní 2017

Rétt svar við getraun júnímánaðar er Hvalfell. Myndin er loftmyndasafni Landmælinga Íslands. Myndin var tekin 23 ágúst 1998. Einar Ólafur Karlsson lét þetta fylgja.

Hvalurinn í hvalvatni

Einu sinni fóru menn frá Miðnesi á Suðurnesjum fram í Geirfuglasker. Varð þá eftir af þeim einn maðurinn sem þeir ekki gátu náð vegna brims; var hann nú talinn af. Maður þessi hét Gísli.

Árið eftir fóru menn í Geirfuglasker. Var þá sami maðurinn þar fyrir í skerinu heill og lifandi. Fór hann með þeim til lands, en sagði fátt um ársdvöl sína þó hann væri að spurður. Þó varð einhver þess vís af honum að hann hefði verið hjá konum tveim og að sú yngri væri ólétt eftir hann.

Skömmu síðar var hann við kirkju á Hvalsnesi; var þá messufólk margt. Um messutímann vill það til að kona kemur inn á kirkjugólfið og setur þar barnsvöggu með barni í, og var yfir vöggunni rautt klæði. Fer hún síðan út. Eftir messuna spyr prestur alla í kirkjunni hvort nokkur kannist við barn þetta eða hvort nokkur vilji láta skíra það, en enginn gefur sig fram. Snýr þá prestur sér beinlínis að Gísla sem í skerinu hafði verið og spyr hann hvort hann kannist ekki neitt við barnið eða vilji láta skíra það. Maðurinn neitar því harðlega.

Í sama bili kemur kvenmaðurinn sem með vögguna kom inn og er þá mjög reiðugleg. Átelur hún manninn harðlega þar sem hann eigi henni lífið að þakka, hafi verið hjá henni árlangt og eigi með henni barn þetta, að hann skuli vera sá níðingur að vilja ekki kannast við barnið né láta skíra það. Lagði hún það á að hann í staðinn skyldi verða að þeim versta illfiski á Faxaflóa.

Nú ætlaði prestur að hafa meira viðtal af konu þessari, en hún greip í sama bili barnsvögguna og gekk með hana úr greipum þeim. Sást hún ekki framar, en rauða klæðið varð eftir og var haft fyrir altarisklæði í kirkjunni.

En það er að segja af Gísla að honum varð svo við að hann hljóp í sjóinn, varð að illhveli og grandaði bátum á Faxaflóa; urðu að því mikil vandræði. Loks fengu menn kraftaskáld eitt til að kveða hvalinn upp á land. Kvað hann hann þá upp í Hvalvatn og sést hann þar ekki nema þegar veit á harðindi eða einhver önnur stórtíðindi.

Úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar

Nafn Rakelar Báru Þorvaldsdóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Maí 2017getraun_mai_17

Rétt svar við getraun maímánaðar er Hvalstöðin á Höfðaodda í Dýrafirði, eða  Framnesi eins og Norðmenn endurnefndu svæðið. Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnum 21. júní 1908.  Í frjálsa alfræðiritinu Wikipediu kemur fram að hvalstöðin hafi verið starfrækt á árunum 1893 til 1903 þegar Norðmenn fluttu hana til Mjóafjarðar á Austurlandi.

Að þessu sinni hefur getraunin greinilega vafist fyrir mörgum því aðeins fimm rétt svör bárust og var nafn Halldórs Árnasonar dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Apríl 2017getraun_april_17

Rétt svar við getraun aprílmánaðar er Lagarfljótsós. Myndin sem tekin var árið 1975 sýnir hvar ósar Lagarfljóts og Jökulsár á Dal, sem einnig gengur undir nöfnunum  Jökulsá á Brú eða Jökla,  mætast. Lagarfljótsós er við botn  Héraðsflóa og meiri fróðleik um fljótin og flóann má finna á ferðavefnum www.nat.is

Nafn Gylfa Konráðssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Mars 2017getraun_mars_17

Rétt svar við getraun marsmánaðar er Norðurá í Borgarfirði. Ljósmyndina tóku danskir landmælingamenn 27. júní 1906. Norðurá er þekkt laxveiðiá og í frjálsa alfræðiritinu Wikipedia má lesa eftirfarandi um Norðurá:

„Norðurá er bergvatnsá í Norðurárdal. Hún á upptök sín í Holtavörðuvatni á Holtavörðuheiði og renna margir lækir og ár í hana. Norðurá rennur um Norðurárdal uns hún sameinast Hvítá um 5,6 km frá sjó. Vatnasvið Norðurár er 518 km og lengd hennar frá Holtavörðuvatni að ósi í Hvítá er tæpir 61 km. Í Norðurá eru fossarnir Laxfoss og Glanni. Halli árinnar er mjög lítill upp að Sanddalsá ef undan er skilið svæðið milli Laxfoss og Glanna.
Þegar Grábrókarhraun rann til austurs frá Grábrók fyrir um 3000 árum stíflaði hraunið Norðurá. Þá myndaðist stöðuvatn í dalnum sem smám saman fylltist af framburði árinnar. Áin gróf sig svo með tímanum í gegnum hraunhaftið.
Mikil laxveiði er í Norðurá og þar eru einnig urriði og bleikja.“

Nafn Björgvins Þórarinssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Febrúar 2017getraun_feb_17

Rétt svar við getraun febrúarmánaðar er Vestmannaeyjar. Myndin sem er bæjarteikning danskra landmælingamanna var dregin upp árið 1903.

Björn Bogason bendir á að ef fólk hefur áhuga á fróðleik um Vestmannaeyjar þá má finna ómældar upplýsingar á vef heimamanna Heimaslóð.
Þökkum Birni fyrir ábendinguna.

Nafn Lovísu Ásbjörnsdóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

Janúar 2017

Rétt svar við getraun janúarmánaðar

er Eskifjörður. Myndin er úr ljósmyndasafni LMÍ tekinn 9. sept 1908 .

Ragnar Antoniussen lét þennan fróðleik fylgja:

„Hvalstöðin http://www.glettingur.is/images/stories/63/
G63_gamlamyndin_01.jpg
Þarna er norskt hvalveiðiskip með hval og liggur það utaná öðru stærra skipi.
Ég gat ekki grafið neitt upp um norska hvalveiðiskipið sem er með hvalinn annað en mynd sem ég fann á www.visiteskifjordur.is.
Þar gæti bara verið sama skip á ferðinni en frá öðru sjónarhorni með fjallið Hólmatind í Bakgrunni.
Sjá hér:  http://www.visiteskifjordur.is/wp-content/uploads/2014/07/landm%C3%A6lingar-hvalaskip.jpg
Gaman að þessi skyldi koma, ekki er langt síðan ég var í umræðu við afa konu minnar sem er frá Reyðarfirði og heitir Páll Beck.
Vorum við m.a. annars að ræða hvalveiðar Norðmanna í firðinum.
Gaman er einnig að nefna að ég fann að í Svínaskálastekk fæddist maður að nafni Ricard Beck, hann fór svo ungur til Ameríku og starfaði þar sem kennari og rithöfundur við góðan orðstír.“

Nafn Gísla Rúnars Magnússonar var dregið úr réttum svörum

 

 

 

 

 

Desember 2016

Rétt svar við getraun nóvembermánaðar er Þingeyri. Myndin er úr safni LMÍ af bæjarteikningum dana .

Ég vona að getraunin hafi ekki eyðilagt jólin fyrir neinum.

Segi þetta því yfirleitt eru þáttakendur mjög getspakir en að þessu sinni voru einir 8 kaupstaðir nefndir til sögunnar..

Nafn Estherar Hlíðar Jensen var dregið úr réttum svörum

 

 

 

 

 

Nóvember 2016

Rétt svar við getraun nóvembermánaðar er Borgarnes. Myndin er úr ljósmyndasafni LMÍ tekinn 8. júlí 1910.

Guðný Elínborgardóttir lét þetta fylgja  Borgarnes 1910 séð af sandeyri á milli Litlu og Stóru-Brákarey. Til vinstri er Vesturbryggja þar upp af er Brideverslun og þar ofar pósthúsið sem brann 1920.

Háa húsið er Teitshús, svo Hótelið, hús Magnúsar Þorbjarnarsonar.

Björn Bogason kom með skemmtilega viðbót og nafgreindi börnin á myndinni Jóhann Ólafsson með rauðmaga og Ingveldur Teitsdóttir ti vinstri, bráðskemmtilegt.

Nafn Guðnýjar Elínborgardóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Október 2016

Rétt svar við getraun októbermánaðar er Surtsey. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ tekinn 31. ágúst 1976.

Ragnar Antoniussen lét þetta fylgja með. Surtsey ásamt þjóðgarðinum á Þingvöllum eru einu staðirnir á Íslandi sem eru skráðir á heimsminjaskrá UNESCO.  Þjóðgarðurinn á Þingvöllum frá júlí árið 2004 og Surtsey frá 8.júlí 2008

Fannst merkileg sagan um Pálsbæ og nýja Pálsbæ sem eru kallaður Pálsbær 2.  Eins og segir í „SURTSEY RESEARCH PROGRESS REPORT X“ sem „THE SURTSEY RESEARCH SOCIETY“ gaf út árið 1992.  http://www.surtsey.is/SRS_publ/1992-X/1992_X_1.pdf

Þar segir:  „In order to facilitate the scientific work on Surtsey a house was erected there in 1966.  This was made possible by a contribution by late Prof. Paul G. Bauer. The house was named Pálsbær (the house of Paul). It served the scientific commun
ity well for years but be came a victim of geomorphological changes of the island. In 1985 a new house was built at a more settled aiid stable site. The widow of Prof. Paul S. Bauer, Winifred, contributed generously to its construction. For that we are indeed grateful. The new house has been given the name Pálsbær II.“

Nafn Finns Kristinssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

September 2016

Rétt svar við getraun septembermánaðar er Ástjörn. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ tekinn 27. maí 1977.

Ragnar Antoníussen lét þennann fróðleik fylgja sínu svari.

Ferlir eru með þessa fínu upplýsingasíðu um Ástjörn sem gaman og fræðandi er að lesa, http://www.ferlir.is/?id=18375

Svona til gamans er einnig gaman að nefna að í nágrenni við tjörnina er geocache-punktur sem heitir sama nafni og tjörnin.

Tilvalið fyrir þá sem hafa gaman að Geocaching að finna hvar geo hluturinn er falinn og klára svo að labba í kringum Ástjörnina.

Geocaching kort af svæðinu er hér:

https://www.geocaching.com/map/#?ll=64.05294,-21.96686&z=14

og vinningshafinn sagði frá því að þarna í kringum tjörnina heldur hjóleriðafélagið Bjartur sína árlegu innafélags heimsmeistarakeppni

Nafn Jóhanns Thorarensen var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Ágúst 2016

Rétt svar við getraun ágústmánaðar er Bifröst. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ tekinn 31. ágúst 1976.

Guðný Elínborgardóttir lætur þennann fróðleik fylgja sínu svari.

Háskólinn á Bifröst á rætur að rekja  til Samvinnuskólans sem var stofnaður árið 1918 í Reykjavík og hóf starfsemi í desember.

Sumarið 1955 var skólinn fluttur að Bifröst í Norðurárdal í Borgarfirði og hefur verið starfræktur þar síðan.

Grábrókarhraun er á náttúruminjaskrá. Háskólinn að Bifröst og Hreðavatnsskáli eru í Grábrókarhrauni.

Nafn Ísars Guðna Arnarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Júlí 2016

Rétt svar við getraun júlímánaðar er Skagaströnd. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ tekinn 31. ágúst 1976.

Guðný Elínborgardóttir er dugleg að lát fróðleik fylgja sínu svari og kunnum við henni þakkir fyrir. Þetta fylgdi hennar svari að þessu sinni.

Skagaströnd áður Höfðakaupsstaður er þorp á vestanverðum Skaga sem hefur verið sjálfstætt sveitarfélag, Höfðahreppur, síðan Vindhælishreppi var skipt í þrennt 1. janúar 1939. 11. september 2007 var tilkynnt um að nafni sveitarfélagsins hefði verið breytt í Sveitarfélagið Skagaströnd.

Skagstrendingar voru fyrstir til að fá í flota sinn frystitogara árið 1982, bar hann nafnið Örvar HU-21 og var smíðaður á Akureyri.

Fyrir ofan bæinn stendur fjallið Spákonufell og dregur það nafn sitt af gamalli þjóðsögu um spákonuna Þórdísi.

Ef horft er á fjallið úr norðri eða suðri þykjast glöggir sjá andlit Þordísar steingervt í borgina.

Nafn Guðmundar Jóns Björgvinssonar var dregið úr réttum svörum.

Júní 2016

Rétt svar við getraun júnímánaðar er Kirkjubæjarklaustur Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ tekinn7. ágúst 1977.

Window Version: 17 WindowIdentifier: 17 XAxisResolution: 1270.00 ( 20.0 microns ) YAxisResolution: 1270.00 ( 20.0 microns ) WindowWidth: 23990 WindowLength: 25220 XAxisUpperLeft: 0 YAxisUpperLeft: 6719 BasePixelSize: 0.02000 Enlargment: 100.00 Subscans: 9 SubScanOffsets: 1167 2567 3967 5367 6767 8167 9567 10967 NrofLines: 12610 NrofBytes: 23990 NrofPixels: 11995 LinesSent: 12610 FirstLine: 0 LineOrder: 1 NrOutputBits: 8 ImageComposition: 0x0002 ( IC_MultiLevelBW ) ColorChannelNr: 0 ProcessorType: 0 ( Little Endian ) ScanMode: 0x004C ( SM_MATCHING:SM_CROSSFADE:SM_FILLHOLES ) ImageType: 0x00021201 ( IT_DURCHLICHT:IT_FINALSCAN:IT_SERVERSCAN:IT_MAPPING ) BlackPoint: 1 1 1 0 WhitePoint: 145 145 145 255 MinValue: 0 0 0 0 MaxValue: 255 255 255 255 GradCurves: Type: 0 NrOfCurves:0 Atmf Parameters: Methode: 0 Lens position: 1 HW Binning: 4 HW Steps: 4 SW Binning: 255 SW Steps: -1 Focus position: 623 Exposure time: 43.571200 Lamp intensity: 254 ADC Gain: 197 234 255 ADC Offset: 0 0 0 Dark vector at: 17.000000 Dark vector length: 50 Sens vector at: -2.000000 Sens vector length: 50 Next subscan at: 28.000 67.190 FocusStart: 0 FocusEnd: 0 FocusStepSize: 0 FocusEvalPosX: 0.000000 FocusEvalPosY: 0.000000 DeltaFokussierung: 0 Border: 0.600000 ResampMethode: 2 MaxInterpolation: 0.000000 CntrlVersion: ipccntrl 1.74.27.261 ServerscanFile: D:/F02/F02-F-0372.tif Factor: 20000 File Parameters: File Type: 0 ( FILE_TIFF ) SubType

Oft fylgir svörunum eitthvað skemmtilegt Gísli Rúnar Magnússon lét þetta fylgja.

Kirkjubæjarklaustur er sveitaþorp í Skaftárhreppi. Kirkjubæjarklaustur er í fögru umhverfi við Skaftá og eru þar margir þekktir ferðamannastaðir á borð við Systrastapa, SystrafossStjórnarfoss og Kirkjugólfið.

og Guðný Elínborgardóttir þetta.

Kirkjubæjarklaustur hét Kirkjubær til forna. Býli á Síðu. Þar bjuggu papar fyrstir manna, að sögn Landnámabókar og máttu heiðnir menn ekki búa þar.

Séra Jón var sóknarprestur byggðarinnar þegar Skaftáreldar brunnu árið 1783. Sú trú lék á að hann hefði stöðvað hraunrennslið í farvegi Skaftár vestan Systrastapa með þrumuræðu sem hann hélt við messu í Kirkjubæjarklausturskirkju 20. júlí 1783.

Nafn Bjarka Eiðssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Maí 2016

Rétt svar við getraun maímánaðar er Grundafjörður. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ og var tekinn 11.ágúst 1192

Enn og aftur lét Guðrún Elínborgardóttir fróðleik fylgja sínu svari. Takk fyrir það Guðrún

„Kirkjufell, bæjarfjall Grundarfjarðar, er eitt af þekktustu fjöllum Íslands ef ekki heimsins alls. Ekki er óalgengt að erlendir ljósmyndarar heimsæki Ísland í þeim tilgangi einum að mynda þetta einstaka fjall. Kirkjufell hefur meira að segja farið með hlutverk í stórum Hollywood myndum, nú síðast The Secret Life of Walter Mitty.“

Nafn Ómars Smára Ármannssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Apríl 2016

Rétt svar við getraun aprílmánaðar er Fjórðungsvatn. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ og var tekinn 21. júlí 1980

Guðrún Elínborgardóttir lét þennan fróðleik fylgja sínu svari.

„Vestan undir Fjórðungsöldu er Fjórðungsvatn og vegurinn er rétt vestan þess. Vatnið er svo grunnt, að það getur horfið í mikilli þurrkatíð.

Skammt frá vatninu eru vegamót. Þaðan liggja leiðir norður og suður Sand, niður í Eyjafjarðardal, að Laugafelli, niður í Skagafjörð og áfram norðan Hofsjökuls út á Kjalveg.“

Nafn Lindu Georgsdóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Mars 2016

Rétt svar við getraun marsmánaðar er Mosfellsdalur. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ.getraun_mars_16

Oft fylgir svörunum eitthvað skemmtilegt Heiðrún Sigurðardóttir lét þetta fylgja.

„Sést yfir dalinn hennar móður minnar Mosfellsdalinn, móðir mín er ættuð frá Hrísbrú sem sést ekki á þessari mynd, á þessum degi er verið að halda uppá 11 ára systur minnar í sumarbústað í landi Hrísbrúar og það er mánuður og einn dagur í fimm ára afmæli mitt, líklegast er ég einhversstaðar skoppandi um móana að tína ber. Ættin mín kemur við sögu í Innansveitarkroninku Halldòrs Laxness þar sem afi minn faldi kirkjuklukku mosfellskirkju.“

Nafn Þorgríms Jónassonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Febrúar 2016

Window Version: 17 WindowIdentifier: 17 XAxisResolution: 1270.00 ( 20.0 microns ) YAxisResolution: 1270.00 ( 20.0 microns ) WindowWidth: 23682 WindowLength: 25357 XAxisUpperLeft: 0 YAxisUpperLeft: 6845 BasePixelSize: 0.02000 Enlargment: 100.00 Subscans: 9 SubScanOffsets: 1039 2439 3839 5239 6639 8039 9439 10839 NrofLines: 12679 NrofBytes: 23682 NrofPixels: 11841 LinesSent: 12679 FirstLine: 0 LineOrder: 1 NrOutputBits: 8 ImageComposition: 0x0002 ( IC_MultiLevelBW ) ColorChannelNr: 0 ProcessorType: 0 ( Little Endian ) ScanMode: 0x004C ( SM_MATCHING:SM_CROSSFADE:SM_FILLHOLES ) ImageType: 0x00021201 ( IT_DURCHLICHT:IT_FINALSCAN:IT_SERVERSCAN:IT_MAPPING ) BlackPoint: 0 0 0 0 WhitePoint: 92 92 92 255 MinValue: 0 0 0 0 MaxValue: 255 255 255 255 GradCurves: Type: 0 NrOfCurves:0 Atmf Parameters: Methode: 0 Lens position: 1 HW Binning: 4 HW Steps: 4 SW Binning: 255 SW Steps: -1 Focus position: 598 Exposure time: 36.044800 Lamp intensity: 254 ADC Gain: 194 230 255 ADC Offset: 0 0 0 Dark vector at: 17.000000 Dark vector length: 50 Sens vector at: -2.000000 Sens vector length: 50 Next subscan at: 28.000 68.450 FocusStart: 0 FocusEnd: 0 FocusStepSize: 0 FocusEvalPosX: 0.000000 FocusEvalPosY: 0.000000 DeltaFokussierung: 0 Border: 0.600000 ResampMethode: 2 MaxInterpolation: 0.000000 CntrlVersion: ipccntrl 1.74.27.261 ServerscanFile: D:/E04/E04-E-1113.tif Factor: 20000 File Parameters: File Type: 0 ( FILE_TIFF ) SubType

Rétt svar við getraun febrúarmánaðar er Búðardalur. Myndin er úr loftmyndasafni LMÍ tekinn í ágúst 1976.

Oft fylgir einhver fróðleikur svörunum Guðný Elínborgardóttir lét þetta fylgja.

„Búðardalur er þorp í Dölum, við botn Hvammsfjarðar. Þorpið er nú hluti af sveitarfélaginu Dalabyggð og er stjórnsýslumiðstöð þess.Íbúar Búðardals voru 248 þann 1. janúar 2011.“

og Sigurður Óskar Jónsson fylgist vel með og lét vita af því að „Svarið er það sama og í nóvember 2014, Búðardalur.“ svona hefur Búðardalur mikið aðdráttarafl.

Nafn Hallgríms J. Ámundssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Janúar 2016

getraun_jan_16

Rétt svar við getraun janúarmánaðar var Ísafjörður. Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnum 13. júní 1908.

Snorri Grímsson frá Ísafirði sendi okkur eftirfarandi fróðleik, sem við leyfum okkur að birta hér og kunnum Snorra bestu þakkir fyrir:

„Það hefur sjáanlega verið kalt á Ísafirði í fyrri hluta júnímánaðar 1908. Snjórinn nær niður á Gleiðarhjalla í Eyrarfjalli ofan byggðarinnar. Allstórt skip er við Hæstakaupstaðarbryggju, sem þá var oftast kölluð, en fékk nafnið Bæjarbryggja síðar, eftir að Ísafjarðarkaupstaður keypti land Hæstakaupstaðarverslunar. Við aftari siglutré skipsins ber Eyrarkirkju í Skutulsfirði, sem þá mun hafa verið einna efst húsa á Eyrinni. Neðar sjást ýmis hús, sem enn standa, en áberandi dökkt hús milli annarra ljósari, nokkuð vinstra megin við miðja mynd, mun vera Góðtemplarahúsið. Það var leik- og kvikmyndahús Ísfirðinga, en brann árið 1930.“

Nafn Jóns Kristjáns Hilmarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Desember 201512_15

Rétt svar við getraun desembermánaðar var OK. Myndin var tekin 5. september 1978 þegar Ok var ennþá jökull.

Í frétt á RUV þann 21. september 2014 kemur fram að samkvæmt mati Odds Sigurðssonar, jöklafræðings telst Ok ekki lengur vera jökull og á Vísindavefnum má sjá af hverju.

Nafn Finns Kristinssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

 

 Nóvember 2015 getraun_11_15

Rétt svar við getraun nóvembermánaðar var að sjálfsögðu Akureyri. Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnun 31. ágúst 1908.

Eftirfarandi fróðleik fengum við frá Heiðari Þór Hrafnssyni og kunnum við honum bestu þakkir fyrir:

„Þessi mynd er tekin í brekkunni fyrir ofan Hafnarstræti á Akureyri. Það má sjá Svalbarðsströndina handan fjarðarins, einnig má þekkja Oddeyrina og nokkur hús þar sem enn standa og einnig Torfunefsbryggjuna, þá grunar mig að húsið sem rétt sést í stafninn á sé hús skáldsins Matthíasar Jochumssonar þ.e. Sigurhæðir.“ 

Nafn Hafsteins Halldórssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Október 2015getraun_okt_15

Rétt svar við getraun októbermánaðar var Hrafnseyri við Arnarfjörð. Myndin var tekin 14. júlí 1993.

Á heimasíðu Hrafnseyrar má finna allar upplýsingar um staðinn.

Nafn Stefáns Steinssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

September 2015sept_15

Rétt svar við getraun septembermánaðar var Fáskrúðsfjörður. Myndin var tekin 19. september 1980.

Á vefnum http://www.visitfjardabyggd.is segir: „Fáskrúðsfjörður er fallegur fjörður fyrir miðju Austfjarða. Nafn sitt dregur fjörðurinn af eyjunni Skrúði úti fyrir firðinum. Í firðinum voru áður tvö sveitarfélög, Fáskrúðsfjarðarhreppur og Búðahreppur, en Búðahreppur varð til árið 1907 þegar þéttbýlið Búðir var gert að sérstöku sveitarfélagi. Atvinnulíf byggist að mestu á sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða, auk smærri fyrirtækja í iðnaði og verslun, en alla helstu þjónustu er að finna á Fáskrúðsfirði.“

Nafn Viðars Þorgeirssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Ágúst 2015 getraun_agust_15

Rétt svar gið getraun ágústmánaðar var Fjórðungsvatn. Myndin var tekin 21. júlí 1980.

Fjórðungsvatn er vestan undir Fjórðungsöldu, sem er grágrýtisdyngja rétt norðan við miðju Sprengisands. Frá þessu er sagt á vefnum www.nat.is

Nafn Heiðdísar Sigurðardóttur var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Júlí 2015getraun_juli_15

Rétt svar við getraun júlímánaðar var Melasveit. Myndin var tekin 9. september 1977.

Eftirfarandi fróðleik um Melasveitina sendi Lárus Pétursson á Hvanneyri okkur:

„Þetta er Melasveit í Borgarfirði sunnanverðum.
Þjóðvegur nr. 1, Vesturlandsvegur, kemur inn á myndina frá hægri rétt neðan við miðja mynd, beygir svo skömmu síðar til norðurs hjá Fiskilæk og liggur beinn um Hafnarmela upp af myndinni.
Bæir sem greina má á myndinni eru alla vega; Fiskilækur, Narfastaðir, Belgsholt, Melaleiti, Melar, Ás og Bakki, og líklega grillir eitthvað í Súlunes alveg neðst á myndinni aðeins hægra megin við miðju.
Ef sams konar mynd væri tekin í dag mætti sjá að eitt stærsta svínabú landsins, Stjörnugrís hefur risið á Melum, og þar er nú feikna mikið land undir kornrækt.“

Nafn Þorbjargar Jóhannsdóttur var dregið út réttum svörum.

 

 

 

 

Júní 2015getraun_juni_15

Rétt svar við getraun júnímánaðar var Bakkafjörður. Myndin var tekin 3. ágúst 1991.

Bakkafjörður tilheyrir sveitarfélaginu Langanesbyggð og eins og segir á vef sveitarfélagsins þá „…snýst lífðið að mestu um fiskinn í sjónum…“

Nafn Sveinbjörns S. Hilmarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Maí 2015getraun_mai

Rétt svar við getraun maímánaðar var Seyðisfjörður en myndin var tekin árið 1908.

Á myndinni má sjá símastaura sem reistir voru þegar starfsemi Landssíma Íslands hófst á staðnum árið 1906. Þá var  sæstrengur frá meginlandi Evrópu tengdur við símstöð Seyðisfjarðar og um þennan stað fóru síðan öll millilandafjarskipti Íslands í marga áratugi.

Nafn Hauks Eggertssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Apríl 2015getraun_april_15_thumb

Rétt svar við getraun aprílmánaðar er Hveravellir.

Á vef Umhverfisstofnunar má sjá heilmikinn fróðleik um Hveravelli. Þar er meðal annars sagt frá staðsetningu, aðgengi og gönguleiðum.

Nafn Gunnsteins Finnssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Mars 2015getraun_mars_15

Rétt svar við getraun marsmánaðar er Ægissíðan í Reykjavík.

Myndin er tekin einhven tíma á árunum 1950 til 1952 og síðan þessi mynd var tekin hafa orðið miklar breytingar á svæðinu. Til gamans, þá má skoða Borgarvefsjá Reykjavíkur og bera saman þessa gömlu mynd og kort eða loftmynd af svæðinu eins og það lítur út í dag.

Nafn Jóns Smára Jónssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Febrúar 2015getraun_feb_thumb

Rétt svar við getraun febrúarmánaðar var Glanni í Norðurá.

Myndin var tekin af dönskum landmælingamönnum upp úr aldamótunum 1900. Getraunin virðist hafa vafist fyrir mörgum því rétt svör voru ekki mörg.

Inn á vefsíðunni gonguleidir.is segir meðal annars: „Fossinn Glanni er í Norðurá og segja sögur að hann sé dvalarstaður álfa og dverga. Í annálum frá fjórtándu öld var hann nefndur Glennunarfoss. Orðið Glanni merkir birta eða skín.“

Nafn Tryggva Más Ingvarssonar var dregið úr réttum svörum.

 

 

 

 

Janúar 2015

Getraun_jan_2015

Svar við getraun janúarmánaðar var Reykhólar. Myndin var tekin 15. ágúst 1978.

Reykhólar er þorp á sunnanverðum Vestfjörðum en þar settu Landmælingar Íslands upp IceCORS mælistöð árið 2013 og er hún hluti af kerfi sem nær yfir allt landið. Á Reykhólavefnum birtist frétt um verkefnið og viðtal við Þórarinn Sigurðsson mælingarverkfræðing hjá Landmælingum Íslands.

Nafn Björgvins Hanssonar var dregið úr réttum svörum.

 

Leave a comment