Innlent samstarf

Fyrir Landmælingar Íslands er samvinna við stofnanir, ráðuneyti, sveitarfélög og fyrirtæki á starfssviði stofnunarinnar mjög mikilvæg til að ná árangri í grunnverkefnum á sviði landmælinga og kortagerðar hér á landi. Í gildi eru fjölmargir samstarfssamningar við stofnanir og sveitarfélög þar sem markmiðið er að ná sem mestri hagkvæmni við verkefnin og að skiptast á gögnum og þekkingu. Eftirfarandi eru dæmi um samstarfsverkefni undanfarin ár:

1. Samvinna um uppbyggingu á grunngerð landupplýsinga í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið, önnur ráðuneyti, sveitarfélög og stofnanir.

2. GPS mælingar á vegum og slóðum í samvinnu við Vegagerðina og umhverfis- og auðlindaráðuneytið.

3. Skilgreining á opinberu vegakerfi landsins í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Umhverfisstofnun, Landgræðslu ríkisins, Vatnajökulsþjóðgarð, Skipulagsstofnun og sveitarfélög.

4. Uppbygging á nýju hæðarkerfi fyrir Ísland í samvinnu við Vegagerðina og Landsvirkjun.

5. Mælingar á hnitakerfi landsins í samvinnu við Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Orkustofnun, Vegagerðina og fjölmargar aðrar stofnanir og sveitarfélög.

6. Rekstur og miðlun gagna frá GPS jarðstöðvum í samvinnu við Veðurstofu Íslands.

7. Corine gagnagrunnur um landgerðir og landnotkun í samvinnu við flest sveitarfélög og ýmsar stofnanir eins og Náttúrufræðistofnun, Umhverfisstofnun, Skógrækt ríkisins, Landgræðslu ríksins, Landbúnaðarháskóla Íslands, Veðurstofuna, Bændasamtök Íslands ofl.

8. Uppbygging og viðhald á IS 50V gagnagrunninum af Íslandi í samvinnu við Þjóðskrá Íslands, Vegagerðina, innanríkisráðuneytið, Umhverfisstofnun ofl.

9. Öflun Spot 5 gervitunglagagna af Íslandi í samvinnu við fjölmargar stofnanir og sveitarfélög.

10. Vinna við að skilgreina landbúnaðarland í samvinnu við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, Landgræðslu ríkisins, Matvælastofnun Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands.

11. Öflun nákværma hæðarupplýsinga af jöklum landsins í samvinnu við Veðurstofu Íslands, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands ofl.

12. Samvinna við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum við uppbyggingu á gagnagrunni um örnefni á Íslandi.

13. Samvinna við Lísu samtökin og ýmsar stofnanir og sveitarfélög við að þróa og gefa út staðal um flokkunarlista fyrir landupplýsingar.

14. Samvinna við Hagstofu Íslands um miðlun tölfræðilegra upplýsinga á kortum.

15. Samvinna við Ferðamálastofu um skráningu og notkun landupplýsinga í ferðaþjónustunni.

 

Leave a comment