Skrifstofa forstjóra

Umhverfisráðherra skipar forstjóra Landmælinga Íslands og ber hann ábyrgð gagnvart ráðherra í samræmi við lög og skipurit stofnunarinnar.  Forstjóri stjórnar daglegum rekstri, ber ábyrgð á starfsmannamálum stofnunarinnar og stuðlar að því að stofnunin vinni á grundvelli laga sem gilda um starfsemina.

Forstjóri er Eydís Líndal Finnbogadóttir.

Leave a comment