Svið mælinga og landupplýsinga

Helstu verkefni sviðs mælinga og landupplýsinga eru í málaflokkunum hæðar- og landshnitakerfi, fjarkönnun, landupplýsingavinnslu, gæðamálum og tölvumálum.

Mikilvægustu landmælingaverkefnin eru að byggja upp og viðhalda landshnita- og hæðarkerfinu, koma upp og viðhalda GPS-jarðstöðvaneti ásamt því að stunda rannsóknir og þróun í þessum málaflokkum. Verkefni sviðsins í fjarkönnun fela m.a. í sér öflun og úrvinnslu loftmynda og gervitunglagagna , rannsóknir og þróun á þessu sviði. Svið mælinga og landupplýsinga vinnur einnig  að  endurskoðun gagnasafns um landnýtingu (CORINE) og landflokkun. Þá sér svið mælinga og landupplýsinga um uppbyggingu og viðhald landfræðilegra upplýsingagrunna af öllu Íslandi.

Forstöðumaður sviðs mælinga og landupplýsinga er Gunnar H. Kristinsson og hefur hann verið forstöðumaður sviðsins frá 1. janúar 2011.

Leave a comment