Gæðastefna

Gæðastefna LMÍ endurspeglast í eftirfarandi markmiðum:

  • Aðalmarkmið LMÍ er að vera öflug og traust stofnun sem gegnir mikilvægu hlutverki við að uppfylla þarfir samfélagsins fyrir landupplýsingar.IMG_0718
  • LMÍ veitir viðskiptavinum góða og faglega þjónustu sem byggir á heilindum starfsmanna og gagnkvæmu trausti milli aðila.
  • Gætt er hagkvæmni í starfseminni án þess að það komi niður á gæðum verkefnanna sem LMÍ ber að sinna samkvæmt lögum.
  • LMÍ beitir viðurkenndum aðferðum gæðastjórnunar þar sem allir starfsmenn taka virkan þátt í að vinna stöðugt að endurbótum.
  • LMÍ veitir starfsmönnum gott vinnuumhverfi og hvatningu í starfi og styður frumkvæði þeirra.
  • Lögð er áhersla á að viðhalda og efla fagþekkingu starfsmanna.
  • LMÍ fylgir lögum og reglugerðum sem lúta að landmælingum og öðrum verkefnum stofnunarinnar, stjórnsýslulögum, upplýsingalögum og öðrum lögum og sem eiga við.
  • LMÍ fylgir öllum samningum sem LMÍ eru aðili að.

Leiðir að markmiðum

  • Gæðahandbók með verklagsreglum og lýsingum.
  • Gæðahópur sem hefur það hlutverk að fjalla einungis um gæðamál hittist tvisvar í mánuði eða oftar ef þörf krefur til þess að fara yfir gæðamál í stofnuninni.
  • Allir starfsmenn LMÍ fylgi Gæðahandbókinni og öðrum fyrirmælum stjórnenda stofnunarinnar í störfum sínum.
  • Regluleg kynning á stöðu gæðamála á starfsmannafundum í þeim tilgangi að allir starfsmenn LMÍ séu upplýstir, fái fræðslu varðandi gæðamál og geri sér grein fyrir ábyrgð þeirra hvað gæðamál varðar.
  • Öll starfsemi fylgi gæðastaðlinum ISO 9001:2008.
  • Í öllu starfi verði gildi LMÍ höfð að leiðarljósi: nákvæmni – notagildi – nýsköpun

Tilgangur

Gæðastefnan lýsir áherslu Landmælinga Íslands (LMÍ) á gæði vinnu og þjónustu og að þjónusta stofnunarinnar sé í samræmi við væntingar viðskiptavina, samstarfsaðila og starfsmanna.

Með gæðastefnunni vilja LMÍ tryggja stöðugar umbætur í starfsemi stofnunarinnar. Þetta er m.a. gert með því að leggja áherslu á vel skilgreinda verkefnastjórnun.

Stjórnendur LMÍ gera sér grein fyrir að gæðamál eru stöðugt á dagskrá og vanda þarf til verka við úrlausn þeirra. Innleiðing og framkvæmd stefnunnar er mikilvæg til að fullvissa starfsmenn, samstarfsaðila og viðskiptavini LMÍ um áherslur í gæðamálum.

Umfang

Gæðastefnan tekur til allrar vinnu sem unnin er í nafni LMÍ hvort sem er við öflun og vinnslu landfræðilegra gagna, varðveislu og miðlun landfræðilegra upplýsinga eða aðra þjónustu.

Gæðastefnan tekur til allra sem starfa hjá LMÍ eða starfa samningsbundið fyrir stofnunina. Allir starfsmenn LMÍ bera ábyrgð á framkvæmd þessarar stefnu.

Forstjóri LMÍ hefur samþykkt þessa stefnu og styður við framkvæmd hennar.

Ábyrgð

Ábyrgð á framkvæmd gæðastefnu skiptist á eftirfarandi hátt:

  • Forstjóri LMÍ ber ábyrgð á gæðastefnu stofnunarinnar.
  • Gæðastjóri ber ábyrgð á innleiðingu gæðastefnunnar og beitir til þess viðeigandi stöðlum og verkferlum.
  • Allir starfsmenn LMÍ bera ábyrgð á að fylgja þeim vinnuferlum og lýsingum sem tengjast verkefnum þeirra og tryggja eiga framkvæmd gæðastefnunnar.
  • Samstarfsaðilar, verktakar og birgjar bera ábyrgð á að samningsbundnum vinnuferlum sem tryggja eiga að gæðastefnunni sé fylgt.
  • Allir starfsmenn LMÍ bera ábyrgð á að tilkynna frávik og galla sem varða væntingar viðskiptavina.

Endurskoðun

Þessi  stefna skal endurskoðuð annað hvert ár eða oftar ef þörf krefur.

Samþykki

Forstjóri ásamt framkvæmdastjórn rýnir og samþykkir gæðastefnuna áður en hún er gefin út.