Starfsmannastefna Landmælinga Íslands

Gildi: Nákvæmni, notagildi, nýsköpun

Starfsmannaval

  • Við vöndum starfsmannaval til að tryggja að rétt fólk sé á réttum stað
  • Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum því starfsþjálfun

Starfsumhverfi

  • Við fellum starfsumhverfi að þörfum starfseminnar og gerum starfsvettvanginn eftirsóknarverðan
  • Með gagnkvæmum sveigjanleika og fjölskylduvænum starfsskilyrðum samræmum við starf og einkalíf
  • Við leggjum kapp á öflugt upplýsingastreymi um málefni stofnunarinnar
  • Við gætum jafnræðis/jafnréttis í hvívetna
  • Við berum ábyrgð á góðum samskiptum, jákvæðni, virðingu og hrósi og ræðum það sem betur má fara
  • Við sýnum hvort öðru og stofnuninni trúnað

Starfsþróun og fræðsla

  • Við leggjum áherslu á starfsþróun, faglega þekkingu og hæfni með endurmenntun og þjálfun
  • Við náum árangri með frumkvæði, metnaði og ábyrgð

Heilbrigt líferni og góður félagsandi

  • Við stuðlum að heilbrigðu líferni
  • Við stuðlum að góðum félagsanda