Breytt aðgengi að GPS/GNSS mælingagögnum
Frá árinu 2000 hafa Landmælingar Íslands veitt aðgang að RINEX gögnum frá GPS/GNSS jarðstöðvum í gegnum ftp.lmi.is. Eftir því sem tíminn hefur liðið og stöðvum í IceCORS kerfi LMÍ fjölgað hefur rekstur og utanumhald kerfisins orðið mun umfangsmeira.
Til að bæta aðgengið að RINEX gögnunum hafa Landmælingar Íslands tekið í notkun hugbúnaðinn GNWEB. Með GNWEB verður auðveldara að finna gögn auk þess sem hægt er að sníða þau eftir þörfum hvers og eins.
Í grunninn eru RINEX skrárnar einnar sekúndu gögn sem eru vistuð á klukkutíma fresti. Notendur geta svo í gegnum veflausnina GNWEB sniðið gögnin að sínum þörfum bæði hvað varðar söfnunarhraða og lengd á mæliskrám. Hnit jarðstöðvanna í skráarhaus eru í viðmiðun ISN2016.
Til að nálgast RINEX gögn verður notandinn fyrst að óska eftir aðgangi að vefsvæðinu með því að senda tölvupóst á gnweb@lmi.is. Til að gera samskiptin við notandann sem skilvirkastan er nauðsynlegt að fá almennar upplýsingar um notandann s.s. nafn fyrirtækis og tengiliðs og netfang. Notandinn fær síðan sent í tölvupósti notandanafn og lykilorð til að geta nálgast gögnin. Ekkert gjald er tekið fyrir gögnin.
Leiðbeiningar fyrir eldri útgáfu af GNWEB.
Ef þú vilt ná í 30 sekúndna gögn í gegnum FTP þá er slóðin hér
Ef þú getur ekki fundið gögnin í gegnum GNWEB hugbúnaðinn, vinsamlegt hafið samband og við aðstoðum við að finna gögnin sem leitað er að.
Tiltækileiki 1 sekúndu mæligagna frá jarðstöðvarkerfi LMÍ (IceCORS) fyrir árið 2014 er 92%
Data availability (1 second) in the IceCORS network for the year 2014 is 92%
Tiltækileiki 1 sekúndu mæligagna frá jarðstöðvarkerfi LMÍ (IceCORS) fyrir árið 2013 er 95%
Data availability (1 second) in the IceCORS network for the year 2013 is 95%
