Skýrslur INSPIRE hópa

Í byrjun árs 2014 var sett af stað verkefni til stuðnings innleiðingu INSPIRE og laga um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar. Verkefnið var unnið hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu í nánu samstarfi við Landmælingar Íslands. Markmið þessa verkefnis var að finna hvar gögn opinberra aðila eru geymd, hvernig og hvort þau falli undir INSPIRE tilskipunina. Kortleggja (e. Schema mapping) gögnin að kröfum INSPIRE tilskipunarinnar og taka saman tillögur um hagræðingu á sviði landupplýsinga á Íslandi; hvort heldur með tilliti til verklags og verkefna eða laga og reglugerða. Tekin voru fyrir þemu í viðaukum I og II innan INSPIRE tilskipunarinnar og settir á laggirnar vinnuhópar með tengiliðum stofnana sem eiga eða fara með gögn í hverju þema fyrir sig. Vinnuhóparnir ræddu gögn og umhverfi stofnana og komið var með tillögur að umbótum þar sem þurfti. Í einhverjum tilvikum var mögulegt að velja ákveðin gagnasöfn sem svokölluð INSPIRE gögn Íslands en í flestum tilvikum beindust sjónir að samræmingarþörf stofnana og umbótum. Skýrslur vinnuhópanna eru nú tilbúnar og aðgengilegar almenningi hér á heimasíðu Landmælinga Íslands. Unnið verður út frá aðgerðarpunktum vinnuhópanna hjá viðkomandi ráðuneyti eða stofnun en samantektarskýrsla verður unnin og gerð aðgengileg á haustdögum. Athugasemdir og ábendingar varðandi skýrslurnar eru vel þegnar á netfangið lmi(hja)lmi.is.

 

Skýrslurnar

 

Viðmiðunarhnitarkerfi Landfræðileg reitakerfi Örnefni Stjórnsýslueiningar Heimilisföng
Landareignir og lóðir Verndarsvæði Hæðarkerfi Landgerð Uppréttar fjarkönnunarmyndir